Óskað eftir tilboðum í gerð fyrirstöðugarðs við Suðurtanga

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í verkið Fyrirstöðugarður við Suðurtanga 2025.

Um er að ræða gerð 80 metra fyrirstöðugarðs við Suðurtanga á Ísafirði.

Helstu magntölur:

  • Grjót og kjarni úr námu samtals um 840 m3.
  • Upptekt og endurröðun um 1.800 m3.

Helstu dagsetningar:

  • Verðfyrirspurn auglýst 1. apríl 2025
  • Lokadagur fyrirspurna og athugasemda: 3. apríl 2025
  • Svarfrestur: 7. apríl 2025
  • Skilafrestur: 10. apríl 2025 kl. 14:00
  • Verklok: 30. júní 2025
  • Gildistími tilboðs 4 vikur
  • Verktrygging 10%

Verkkaupi:

Hafnir Ísafjarðarbæjar
Kt. 600596-2419
Hafnarhúsinu, Ásgeirsbakka
400 Ísafirði

Útboðsgögn eru afhent í tölvupósti, bjóðendur skulu hafa samband við umsjónamann verðfyrirspurnar, Hilmar Lyngmo, hofn@isafjordur.is,  til að óska eftir gögnum.