Þingeyri: Lokað fyrir vatnið 25. mars

Loka þurfti fyrir vatnið á Þingeyri nú rétt í þessu, kl. 14:30 þriðjudaginn 25. mars. Orsökin er lögn sem rofnaði við framkvæmdir. Búast má við að röskun verði á vatnsveitunni eitthvað fram undir kvöld.

Sennilega þarf að taka vatnið aftur af vegna kranaskipta seinnipartinn á morgun, miðvikudag, en nánari upplýsingar verða sendar út um það þegar það er staðfest. 

SMS hefur verið sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is.

Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.

Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.