Skipulagslýsing: Breyting á deiliskipulagi vegna kláfs upp á Eyrarfjall

Mynd: Efla verkfræðistofa
Mynd: Efla verkfræðistofa

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum þann 6. febrúar 2025, að kynna skipulagslýsingu samkvæmt 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna vinnu við nýtt deiliskipulag fyrirhugaðs kláfs upp á Eyrarafjall á Ísafirði, unnið samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010.

Skipulagssvæðið er staðsett í Eyrarfjalli sem er 700 metra hátt beint fyrir ofan Ísafjarðarbæ. Það afmarkast af byrjunarstöð kláfsins við hlíðarfót Eyrarfjalls, upp að Gleiðarhjalla þar sem reistur verður millistaur fyrir kláfinn og svo áfram á topp Eyrarfjalls þar sem endastöð kláfsins er staðsett. Við framkvæmdina verður sett upp vinnulyfta sem mun flytja allt byggingarefni og lyftustaura upp á Gleiðarhjalla og Eyrarfjall. Ekki þarf því að leggja vegslóða upp fjallshlíðina.

Framkvæmdin, sem verður í höndum Eyrarkláfs ehf., felst í að útbúa bílastæði fyrir farþega kláfsins, upphafsstöð kláfsins í hlíð Eyrarfjalls og endastöð á toppi fjallsins með einum millistaur á Gleiðarhjalla. Á toppi Eyrarfjalls verður gert ráð fyrir þjónustubyggingu og hóteli á seinni stigum uppbyggingar. Svæðið við byrjunarstöð kláfsins er á B-svæði sem er skilgreint sem staðaráhætta vegna ofnaflóða á bilinu 1-3 af 10.000 á ári.

Nýtt deiliskipulag er unnið samhliða breytingum á aðalskipulagi og breytingu deiliskipulagi hlíðarinnar frá 2010, neðan Gleiðarhjalla (ytri hluti) sem eru auglýst samtímis. Aðal- og deiliskipulagið fellur undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.

Skipulagslýsingin er aðgengileg á bæjarskrifstofum, Hafnarstræti 1, Ísafirði, og í Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar, mál nr. 173/2025, frá 12. febrúar 2025 til og með 12. mars 2025.

Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillöguna á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað í Skipulagsgáttina eða senda skriflega á skipulagsfulltrúa Ísafjarðarbæjar á: skipulag@isafjordur.is .

Skipulagsfulltrúi Ísafjarðarbæjar

  • Með kynningu lýsingarinnar er umsagnaraðilum, hagsmunaaðilum og almenningi gefinn kostur á að leggja fram sjónarmið og ábendingar sem að gagni gætu komið við mótun tillögu að breytingu á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags.
  • Einnig verður aftur hægt að koma með ábendingar þegar vinnslutillaga fyrir aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag verður kynnt og þegar tillagan verður auglýst.
  • Gert er ráð fyrir að breyting á aðalskiplagi og deiliskipulagi auk nýs deiliskipulags verði unnið og auglýst samhliða.

Sjá einnig:
Skipulagslýsing: Breyting á aðalskipulagi vegna kláfs upp á Eyrarfjall