Lyklaskipti í Blábankanum
30.08.2023
Fréttir
Fimmtudaginn 29. ágúst voru lyklaskipti í Blábankanum á Þingeyri þegar Gunnar Ólafsson tók formlega við sem Blábankastjóri af Birtu Bjargardóttur.
Af þessu tilefni var opið hús í Blábankanum og gestum boðið upp á kaffi og kræsingar. Gunnar hefur tekið virkan þátt í þróun nýsköpunar en undanfarin ár hefur hann rekið Djúpið, samfélags- og nýsköpunarmiðstöð í Bolungarvík, auk þess að hafa komið á laggirnar fjölmörgum sprotaverkefnum.
Birta hefur verið Blábankastjóri frá 2021 en hverfur nú til annarra starfa.