Akstursstyrkir vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna 2024

Ísafjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um akstursstyrki vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna árið 2024.

Sótt er um styrkinn í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.

Styrkirnir eru til handa foreldrum barna og unglinga á grunnskólaaldri sem eiga lögheimili í Dýrafirði, Súgandafirði og Önundarfirði og taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi í Ísafjarðarbæ. Aðeins er veittur einn styrkur á hvert heimili á ári, óháð fjölda barna. Ekki er greiddur út styrkur til barna og unglinga sem eiga lögheimili í Skutulsfirði þar sem frístundarúta milli Skutulsfjarðar og Bolungarvíkur þjónar þeim.

Upphæð styrks fyrir heimili er 40.000 kr. Umsóknarfrestur er til og með 16. desember.