549. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn kemur saman til 549. fundar þriðjudaginn 18. mars kl. 17.
Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn. Bein útsending af fundinum er á Youtube-rás Ísafjarðarbæjar.
Dagskrá
Almenn mál
1. Fundir bæjarstjórnar 2022-2026 - 2022050136
Tillaga frá bæjarstjóra um að bæjarstjórn færi fyrirhugaðan fund hjá sér, sem halda átti þann 30. apríl, þannig að hann verði haldinn þriðjudaginn 6. maí. Fyrri umræða ársreiknings yrði þann 6. maí, og síðari umræða þann á fyrirhuguðum fundi þann 15. maí.
2. Sætún 5 á Suðureyri. Umsókn um lóðarleigusamning - 2025020206
Tillaga frá 648. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. mars 2025, um að bæjarstjórn samþykki að heimila útgáfu lóðarleigusamnings við Sætún 5 á Suðureyri.
3. Æðartangi 9, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2025020064
Tillaga frá 648. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. mars 2025, um að bæjarstjórn samþykki að Vestfirskir verktakar ehf. fái lóðina við Æðartanga 9 á Ísafirði skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.
Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan 12 mánaða frá úthlutun.
4. Hrafnatangi 4, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2025030093
Tillaga frá 648. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. mars 2025, um að bæjarstjórn samþykki að úthluta lóðinni Hrafnatanga 4 til Nora Seafood ehf. skv. úthlutunarreglum Ísafjarðarbæjar í samræmi við umsókn dags. 11. febrúar 2025 þar sem sótt er um lóðina Hrafnatanga 4, Ísafirði til vara, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða.
Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan 12 mánaða frá úthlutun.
5. Lóðir á Suðurtanga - 2025020106
Tillaga frá 648. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. mars 2025, um að bæjarstjórn samþykki að lóðirnar við Hrafnatanga 6 og Æðartanga 11 verði teknar af lóðalista á grundvelli 6. greinar lóðarúthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar og samið verði við Eimskip Ísland ehf.
Nefndin telur að tryggja þurfi lóðir fyrir land- og sjóflutninga sem næst hafnar- og gámasvæði. Staðsetning á þessu svæði mun bæta umferðaröryggi á Suðurtanga.
6. Lóðamál íþróttamannvirkja á Torfnesi, Ísafirði - 2025030025
Tillaga frá 648. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. mars 2025, um að bæjarstjórn heimili endurskoðun á deiliskipulagi íþróttasvæðis við Torfnes og að lóðin við Seljalandsveg 29 verði felld út og svæðið stækkað sem því nemur.
7. Réttarholt í Engidal, Skutulsfirði. Stækkun og uppbygging kirkjugarðs - 2024030031
Tillaga frá 648. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. mars 2025, um að bæjarstjórn samþykki að heimila málsmeðferð á greinargerð með uppdrætti frá Verkís ehf., dags. 7. mars 2025, sbr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
8. Æðartangi 11, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2025020065
Tillaga frá 648. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. mars 2025, um að bæjarstjórn samþykki að lóðin við Æðartanga 11 verði tekin af lóðalista á grundvelli 6. greinar lóðarúthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar.
9. Hrafnatangi 6, Ísafirði. Umsókn um lóð - 2025020079
Skipulags- og mannvirkjanefnd leggur til við bæjarstjórn að lóðin við Hrafnatanga 6 verði tekin af lóðalista á grundvelli 6. greinar lóðarúthlutunarreglna Ísafjarðarbæjar.
Skipulags- og mannvirkjanefnd lagði jafnframt til við bæjarstjórn að úthluta lóðinni Hrafnatanga 4 til Nora Seafood ehf. skv. úthlutunarreglum Ísafjarðarbæjar í samræmi við umsókn dags. 11. febrúar 2025 þar sem sótt er um lóðina Hrafnatanga 4, Ísafirði til vara, en þá tillögu má þó jafnframt finna í 4. lið fundarins, máli nr. 25030093.
Leggur forseti því til að þessari síðari tillögu um úthlutun Hrafnatanga 4 verði vísað frá þar sem bæjarstjórn hefur þegar samþykkt umsókn Nora Seefood um lóð að Hrafnatanga 4.
10. Viðaukar við fjárhagsáætlun 2025 - viðauki 3 - fyrirstöðugarður og stormpolli - 2025020006
Lagður fram til samþykktar viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2025, vegna tillagna á 260. fundi hafnarstjórnar, sem haldinn var þann 6. mars 2025, vegna 80 metra fyrirstöðugarðs við Suðurtanga, og stormpolla við Sundabakka.
Lagður fram til samþykktar viðauki nr. 4 við fjárhagsáætlun Ísafjarðarbæjar 2025, vegna launakostnaðar notendaráðs fatlaðs fólks á Vestfjörðum. Kostnaður við þrjá fundi á ári er áætlaður kr. 670.149,-. Að auki er lögð til hækkun á aðkeyptri þjónustu vegna endurskoðunar á samningi Velferðarþjónustu Vestfjarða. Kostnaðarauki er samanlagt 1.170.000,- og er því mætt með auknu framlagi frá jöfnunarsjóði vegna málefna fatlaðs fólks.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Ísafjarðarbæjar er kr. 0,-.
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er kr. 0 og er því rekstrarafgangur óbreyttur 223.000.000,-
Áhrif viðaukans á samantekin A og B hluta er kr. 0 og því rekstrarafgangur óbreyttur í kr. 995.000.000,- (án samstarfsverkefna B-hluta)
Fundargerðir til kynningar
11. Bæjarráð - 1317 - 2503008F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1317. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 10. mars 2025.
Fundargerðin er í 9 liðum.
12. Hafnarstjórn - 260 - 2503002F
Lögð fram til kynningar fundargerð 260. fundar hafnarstjórnar, en fundur var haldinn 6. mars 2025.
Fundargerðin er í 10 liðum.
13. Skipulags- og mannvirkjanefnd - 648 - 2503005F
Lögð fram til kynningar fundargerð 648. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar, en fundur var haldinn 13. mars 2025.
Fundargerðin er í 14 liðum.
14. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 155 - 2503009F
Lögð fram til kynningar fundargerð 155. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 12. mars 2025.
Fundargerðin er í 1 lið.
15. Velferðarnefnd - 486 - 2503007F
Lögð fram til kynningar fundargerð 486. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 11. mars 2025.
Fundargerðin er í 3 liðum.