539. fundur bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar kemur saman til 539. fundar fimmtudaginn 3. október kl. 17.

Fundurinn fer fram í fundarsal bæjarstjórnar, 2. hæð í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði og er öllum opinn.

Vegna tæknilegra örðugleika er streymi ekki í boði af fundinum en upptaka verður sett inn föstudaginn 4. október.

Dagskrá

Almenn mál

1. Nefndarmenn 2022-2026 - menningarmálanefnd - 2022050135
Tillaga forseta bæjarstjórnar, f.h. Í-lista, um að Andri Pétur Þrastarson, verði kosinn varafulltrúi Í-lista í menningarmálanefnd, í stað Einars Geirs Jónassonar.

2. Álagningarhlutfall útsvars 2025 - 2024030142
Tillaga frá 1297. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 30. september 2024, um að bæjarstjórn samþykki að útsvar 2025 verði óbreytt 14,97%.

3. Gjaldskrár 2025 - 2024030141
Tillaga frá 1297. fundi bæjarráðs, sem haldinn var 30. september 2024, um að bæjarstjórn samþykki gjaldskrár 2025 eins og þær eru framlagðar, og með þeim breytingum sem lagðar voru til við bæjarráð, sbr. minnisblað bæjarritara dags. 27. september 2024.
Um er að ræða eftirfarandi gjaldskrár:

  • Söfn
  • Samkomuhúsið á Flateyri
  • Félagslegt húsnæði
  • Gatnagerðargjöld
  • Skipulagsbreytingar og framkvæmdaleyfi
  • Slökkvilið
  • Byggingarleyfisgjöld
  • Skóla- og tómstundasvið
  • Íþróttaskóli
  • Grunnskólar leigu- og þjónustugjöld
  • Skíðasvæði og leiga á skíðabúnaði
  • Sundlaugar, líkamsrækt og íþróttahús
  • Fráveitugjöld
  • Sorp
  • Vatnsveita
  • Áhaldahús
  • Dýrahald
  • Skrúður
  • Tjaldsvæði
  • Velferðarsvið
  • Hafnir

4. Aðgerðaáætlun menningarstefnu Ísafjarðarbæjar - 2022100090
Tillaga frá 173. fundi menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 27. september 2024, um að bæjarstjórn samþykki aðgerðaáætlun menningarmála fyrir árið 2025, en leggur auk þess sérstaka áherslu á að setja þurfi á fót stöðugildi menningarfulltrúa eigi aðgerðaáætlun að ganga eftir.

Fundargerðir til kynningar

5. Bæjarráð - 1296 - 2409020F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1296. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 23. september 2024.
Fundargerðin er í 11 liðum.

6. Bæjarráð - 1297 - 2409029F
Lögð fram til kynningar fundargerð 1297. fundar bæjarráðs, en fundur var haldinn 30. september 2024.
Fundargerðin er í 14 liðum.

7. Menningarmálanefnd - 173 - 2409017F
Lögð fram til kynningar fundargerð 173. fundar menningarmálanefndar, en fundur var haldinn 27. september 2024.
Fundargerðin er í 7 liðum.

8. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 9 - 2409013F
Lögð fram til kynningar fundargerð 9. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 19. september 2024.
Fundargerðin er í 2 liðum.

9. Skóla-, íþrótta- og tómstundanefnd - 10 - 2409023F
Lögð fram til kynningar fundargerð 10. fundar skóla-, íþrótta- og tómstundanefndar, en fundur var haldinn 26. september 2024.
Fundargerðin er í 4 liðum.

10. Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 150 - 2409026F
Lögð fram til kynningar fundargerð 150. fundar umhverfis- og framkvæmdanefndar, en fundur var haldinn 26. september 2024.
Fundargerðin er í 4 liðum.

11. Velferðarnefnd - 481 - 2409021F
Lögð fram til kynningar fundargerð 481. fundar velferðarnefndar, en fundur var haldinn 24. september 2024.
Fundargerðin er í 2 liðum.