17. júní 2024 — dagskrá hátíðahalda

Ísafjörður

12:00-12:35 Barnaskemmtun Kómedíuleikhússins: Iðunn og eplin. Sýnt verður í samkomusal á hjúkrunarheimilinu Eyri. Andlistmálun einnig í boði frá 11:40 á sama stað.

13:15 Skrúðganga frá Silfurtorgi upp á Eyrartún

13:30-16:00 Hátíðardagskrá á Eyrartúni

  • Lúðrasveitin leikur fjörug lög
  • Hátíðarræða — Ólafur Guðsteinn Kristjánsson
  • Hátíðarkór — Stjórnandi Tuuli Rähni
  • Ávarp fjallkonu
  • Hoppukastalar, andlitsmálun, karamelluregn, hestbak fyrir börn, sölutjöld körfuknattleiksdeildar Vestra.

14:30-17:00 Kökuhlaðborð til styrktar meistaraflokki kvenna í knattspyrnu á Logni. 

15:30 Kassabílarallý á hátíðarsvæði

16:00 Opnun: Framtíðarfortíð í Safnahúsinu á Ísafirði

  • Framtíðarfortíð Listasafns Íslands og Listasafns Ísafjarðar er fyrsta sýningin í röð sýninga sem marka samvinnu Listasafns Íslands og sýningarstaða á landsbyggðinni.
    Sýningin er haldin til að fagna 80 ára lýðveldisafmæli þjóðarinnar.

17:00 Pikknikk-tónleikar í Blómagarðinum, Austurvelli, í samstarfi við tónlistarhátíðina Við Djúpið.

  • Blönduð dagskrá þekktra laga og frumsamdar tónlistar. Fram koma Svava Rún Steingrímsdóttir, Pétur Ernir Svavarsson og Skúli Mennski. Gestir eru hvattir til að taka tjaldstóla eða teppi með sér.

20:00 Við Djúpið — Opnunarhátíð

  • Seiðandi frönsk tónlist frá síðustu öld myndar ramma utan um þrjú spennandi verk núlifandi tónskálda. Þar hljóma flauta, píanó, marimba, víbrafónn og bassaklarínett sundur og saman auk þess sem segulband kemur við sögu. Fram koma: Christine Köhler, flauta, Alexander Vorontsov, píanó, Moritz Wappler, slagverk, Sem R. A. Wendt, bassaklarínett.
    Nánari upplýsingar

Hrafnseyri

Lýðveldishátíð á Hrafnseyri 16.-17. júní 2024

16. júní

11:00-12:00 Leiðsögn á einfaldri íslensku

  • Íbúar af erlendum uppruna boðnir velkomnir í samstarfi við verkefnið Gefum íslensku séns.
    Leiðsögn og fræðsla um íslenska lýðveldið, Jón Sigurðsson, Hrafnseyri og fornminjar á einfaldri íslensku.
  • Rúta í boði Gefum íslensku séns frá Ísafirði til Hrafnseyrar, þátttakendum að kostnaðarlausu. Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða kl. 10:00 og frá Hrafnseyri kl. 15:00. Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is eða í síma 450 3040 (eða í síma 869 3045) til að skrá ykkur í rútuna. Rútan tekur farþega á leiðinni sé þess óskað.

11:00-12:00 Fornleifaskóli fyrir börn

  • Börn fá tækifæri til að spreyta sig á fornleifauppgrefti undir handleiðslu fornleifafræðings. Hvað leynist undir yfirborðinu? 

11:00-17:00 Ef ég væri forseti – smiðja fyrir börn

  • Smiðjan „Ef ég væri forseti…“ verður opin allan daginn. Í smiðjunni velta börnin fyrir sér hvernig þau myndu vilja nota hæfileika sína og styrkleika, tungumál og áhugamál ef þau væru forseti Íslands.

13:00-13:45 Opnun sýningarinnar Landnám í Arnarfirði og kynning á verkefninu Heill heimur af börnum

  • Kristín R. Vilhjálmsdóttir segir frá verkefninu Heill heimur af börnum – börn setja mark sitt á Íslandskortið.
  • Margrét Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur kynnir sýninguna „Landnám í Arnarfirði“.
  • Margrét Hallgrímsdóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu flytur ávarp og opnar sýninguna.
  • Lag Atla Ingólfssonar, tónskálds við ljóð Þórarins Eldjárns „Ávarp fjallkonunnar“ flutt af sönghóp sem settur er saman af þessu tilefni.

14:00-15:00 Fornleifaskóli fyrir börn

  • Börn fá tækifæri til að spreyta sig á fornleifauppgrefti undir handleiðslu fornleifafræðings. Hvað leynist undir yfirborðinu?

14:15-15:15 Leiðsögn og kynning á fornminjum á Hrafnseyri

  • Hefst á stuttri kynningu í kapellunni með myndum af minjum sem komnar eru undir torfu aftur. Að því búnu er gengið um á Hrafnseyri og staldrað við á stöðum með opnum rannsóknarskurðum og þar sem minjarnar eru staðsettar.

15:15 Smiðja fyrir börn þar sem þeim gefst tækifæri til að búa til sól sem sýnir hvað það er sem fær þau til að skína, hverjir styrkleikar þeirra eru og önnur atriði sem skipta máli í lífi þeirra.

17. júní

11:00-12:00 Leiðsögn og kynning á fornminjum á Hrafnseyri

  • Hefst á stuttri kynningu í kapellunni með myndum af minjum sem komnar eru undir torfu aftur. Að því búnu er gengið um á Hrafnseyri og staldrað við á stöðum með opnum rannsóknarskurðum og þar sem minjarnar eru staðsettar.

11:00-17:00 Ef ég væri forseti – smiðja fyrir börn

  • Smiðjan „Ef ég væri forseti…“ verður opin allan daginn. Í smiðjunni velta börnin fyrir sér hvernig þau myndu vilja nota hæfileika sína og styrkleika, tungumál og áhugamál ef þau væru forseti Íslands.

13:00 Hátíðarguðsþjónusta

  • Séra Fjölnir Ásbjörnsson predikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukór Þingeyrarkirkju syngur undir stjórn Jóngunnars Biering Margeirssonar, sem einnig sér um undirspil.

13:45 Lýðveldiskaka í boði í burstabænum

  • Fólki fæddu 1944 sérstaklega boðið í kaffisamsæti á Hrafnseyri. Kaffiveitingarnar verða á boðstólnum á meðan á athöfninni stendur til kl. 17:00.

14:15 Setning Þjóðhátíðar

  • Hátíðarræða: Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
  • Bríet Vagna flytur tónlist.

15:00 Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda á vegum Háskólaseturs Vestfjarða

Nánari upplýsingar um hátíðahöldin eru á www.hrafnseyri.is

Kynnir á hátíðinni er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.

Opnun myndlistarsýningar sumarsins. Yfirlitssýning á verkum í eigu Hrafnseyrar.

Sýningarstjóri: Ólöf Björk Oddsdóttir.

Kaffiveitingar í boði Hrafnseyrar í burstabænum á meðan hátíðarhöldunum stendur fram til kl. 17:00.

Einnig verður hægt að kaupa súpu og brauð.

Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.

Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30

Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 17:00
Vinsamlegast hafið samband við reception@uw.is eða í síma 450 3040 / 869 3045 til að skrá ykkur í rútuna.