Vinnumálastofnun - Forstöðumaður þjónustuskrifstofu á Vesturlandi og Vestfjörðum
Forstöðumaður þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Vesturlandi og Vestfjörðum
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns hjá þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í umdæmi Vestfjarða og Vesturlands, staðsetning forstöðumanns er á Ísafirði eða á Akranesi.
Forstöðumaður ber ábyrgð á og annast daglegan rekstur, stjórn og framkvæmd verkefna þjónustuskrifstofunnar.
Meðal verkefna þjónustuskrifstofunnar eru ráðgjöf og þjónusta við atvinnuleitendur, flóttamenn, atvinnurekendur og aðra hagsmunaaðila á svæðinu. Forstöðumaður ber ábyrgð á að almennum ákvæðum upplýsinga og stjórnsýslulaga sé ávallt gætt í starfseminni.
Forstöðumaður heyrir undir sviðsstjóra þjónustusviðs Vinnumálastofnunar.
Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á rekstri þjónustuskrifstofunnar.
- Ber ábyrgð á stjórnun og starfsmannahaldi þjónustuskrifstofunnar.
- Tekur þátt í öllum daglegum verkefnum þjónustuskrifstofunnar eftir þörfum.
- Fylgist með árangri þjónustunnar og stuðlar að framþróun hennar.
- Byggir upp og viðheldur samskipti við hagaðila s.s. félagsþjónustur, atvinnulíf á svæðinu og fræðsluaðila.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Stjórnendamenntun og stjórnendareynsla er kostur.
- Stjórnunarhæfni.
- Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun.
- Þekking á félagsþjónustu sveitarfélaga er kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og metnaður í starfi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Stafræn færni til að nýta við framkvæmd og framþróun þjónustuskrifstofunnar er æskileg.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2025.