ScanBio Aurora — Yfirstýrimaður

Yfirstýrimaður á ScanBio Aurora

Leitað er að yfirstýrimanni sem getur leyst af sem skipstjóri á skipinu ScanBio Aurora.
ScanBio Aurora er 46 metra langt skip sem flytur og framleiðir verðmæti úr aukaafurðum úr sjávarútvegi.

Í starfinu felast verkefni stýrimanns bæði í brú og á dekki.

Skipið verður staðsett á norðanverðum Vestfjörðum og er búseta þar kostur.

Umsóknarfrestur er til og með 31. desember, nánari upplýsingar um starfið veitir Örn Smárason 8654814 - iceland@scanbio.com 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórn ScanBio Aurora í samstarfi við skiptjóra
  • Afleysing skipstjóra
  • Tryggja að skipið sé sjóklárt í samstarfi við skipstjóra og vélstjóra
  • Lestun og losun
  • Eftirlit með búnaði á dekki
  • Leiðarplön
  • Viðhalda skírteinum og samskipti við opinbera aðila
  • Rita upplýsingar í skipsdagbækur
  • Tryggja virkni öryggisbúnaðar
  • Skipulegga og halda æfingar um virkni neyðarbúnaðar
  • Viðhalda og uppfæra ferla sem snúa að vinnu um borð

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Að minnsta kosti Skipstjórnarskírteinin STCW II/2
  • Gild heilbrigðisskoðun

Sækja um

Er hægt að bæta efnið á síðunni?