Leikskólinn Sólborg Ísafirði – Leikskólakennari/starfsmaður í leikskóla
Leikskólinn Sólborg á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar 87,5% starf leikskólakennara eða starfsmanns í leikskóla, með möguleika á aukningu frá 1. febrúar 2025. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Sólborg er fjögurra deilda leikskóli sem starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en í skólanum eru um 60 börn. Um er að ræða mjög skemmtilegt og gefandi starf í lifandi starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi.
Hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun
- Jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sveigjanleiki
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Góð íslenskukunnátta
Til greina kemur að ráða umsækjanda með aðra uppeldismenntun eða starfsmann leikskóla ef ekki fæst leikskólakennari og verður þá um tímabundið starf að ræða til eins árs.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2024. Umsóknir skulu sendar til Helgu Bjarkar Jóhannsdóttur leikskólastjóra á netfangið solborg@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og leyfisbréf. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar veitir Helga Björk, í síma 450-8285 / 848-2097 eða í gegnum ofangreindan tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-