Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar - Vallarstarfsmaður
Íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar auglýsa eftir öflugum starfsmanni í 100% starf á vallarsvæðið á Ísafirði. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. maí 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Starfið er tímabundið til loka ágústmánaðar 2025.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: Starfar við ýmis störf á íþróttavöllum á Torfnesi, vallarhúsi og íþróttahúsi. Umsjón með íþróttavöllum og viðhald, sinnir þrifum, heldur svæði snyrtilegu, auk fleiri tilfallandi verkefna.
Hæfnikröfur: Viðkomandi þarf að vera orðin(n) 20 ára, vera sveigjanleg(ur) og handlagin(n), búa yfir framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og hafa gaman af því að veita þjónustu.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við VerkVest/Kjöl.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2025. Umsóknir sendist á netfangið gretarhe@isafjordur.is og með umsókn skal fylgja ferilskrá. Nánari upplýsingar um starfið veitir Grétar Helgason, forstöðumaður íþróttamannvirkja, í síma 450-8488 eða í gegnum fyrrgreint tölvupóstfang.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-