Ísafjarðarbær - Hvesta hæfingarstöð – Stuðningsfulltrúi - sumarstarf
Hvesta hæfingarstöð sem er vinnu og virknimiðað úrræði fyrir fatlað fólk auglýsir laust til umsóknar starf stuðningsfulltrúa. Um er að ræða 50-100% tímabundið starf yfir sumartímann. Starfið er unnið á dagvinnutíma þar sem vinnutími er breytilegur. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf í lok maí, byrjun júní og unnið til loka ágústmánaðar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita þjónustunotendum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja þjónustunotendur til vinnu og ýmissa tómstunda
- Önnur tilfallandi störf samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og samviskusemi
- Almenn ökuréttindi
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Umsóknum skal skilað til Sigþrúðar Margrétar Gunnsteinsdóttir, forstöðumanns Hvestu á sigthrudur@isafjordur.is. Umsóknarfrestur er til og með 4. apríl 2025. Með umsókn skal fylgja ferilskrá.
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-