Icewear — Sölufulltrúar á Ísafirði

Icewear leitar að kraftmiklum og metnaðarfullum einstaklingum í fullt starf, hlutastarf og sumarstarf í verslun fyrirtækisins á Ísafirði.

Um Icewear

Icewear er leiðandi fyrirtæki á útivistarmarkaði og á sögu að rekja allt aftur til ársins 1972.

Vörulína Icewear er stór og samanstendur af fjölbreyttu úrvali af útivistarfatnaði og fylgihlutum fyrir börn og fullorðna. Allar vörur Icewear eru hannaðar á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður. Icewear leggur ávallt mikið upp úr góðri þjónustu og sanngjörnum verðum, enda er útivist fyrir alla.

Verslanir Icewear eru í dag yfir 30 talsins og eru staðsettar um land allt undir merkjum Icewear, Icewear Magasín, Icemart og Arctic Explorer.

Þín útivist - Þín ánægja

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn verslunarstörf
  • Sölumennska
  • Þjónusta við viðskiptavini
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi þjónustulund
  • Reynsla af afgreiðslu og sölustörfum er kostur
  • Stundvísi
  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna í hóp
  • Jákvæðni
  • Frumkvæði
  • Íslensku og enskukunnátta

Sækja um

Er hægt að bæta efnið á síðunni?