Grunnskólinn á Ísafirði – Þroskaþjálfi/iðjuþjálfi
Grunnskólinn á Ísafirði auglýsir laust til umsóknar 100% starf þroskaþjálfa í stoðteymi skólans frá byrjun ágúst 2025 eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða iðjuþjálfa ef ekki fæst þroskaþjálfi til starfa. Skólinn er byggður sem einsetinn skóli með um það bil 400 nemendur og fer öll kennsla fram undir sama þaki, utan íþrótta- og sundkennslu. Undanfarin ár hefur skólinn unnið eftir uppbyggingarstefnunni Uppeldi til ábyrgðar og innleitt kennsluaðferðir leiðsagnarnáms.
Leitað er að drífandi og áhugasömum einstaklingi sem býr yfir miklum skipulagshæfileikum og sýnir frumkvæði og metnað í starfi. Mikilvægt er að viðkomandi geti unnið vel í hópi, ásamt því að vera sjálfstæður í verkefnum þegar þörf krefur. Næsti yfirmaður er deildarstjóri stoðþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samstarfsaðili kennara og annarra starfsmanna
- Vinna að þjálfun í ólíkum færniþáttum út frá þörfum nemenda hverju sinni
- Vinnur með kennurum að gerð einstaklingsáætlana og eftirfylgd með þeim
- Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn og stoðþjónustu innan skólans sem utan
- Ráðgjöf og leiðbeiningar til starfsfólks og foreldra
Menntunar og hæfniskröfur
- Leyfisbréf þroskaþjálfa (eða iðjuþjálfa)
- Áhugi á og reynsla af starfi með börnum og ungmennum
- Jákvæðni, lipurð og færni í samskiptum
- Skipulagsfærni og nákvæmni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Samviskusemi, stundvísi og sveigjanleiki
- Góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknir skulu sendar til Guðbjargar Höllu Magnadóttur, skólastjóra, á netfangið gudbjorgma@isafjordur.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá, prófskírteini og afrit af leyfisbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 9. maí 2025.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Halla í síma 450-8300 eða í gegnum tölvupóst.
Við hvetjum áhugasöm, óháð kyni til að sækja um starfið. Vakin er athygli á markmiði mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar að jafna kynjaskiptingu innan starfsgreina og að vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
-Við þjónum með gleði til gagns-