Velferðarnefnd

374. fundur 15. janúar 2013 kl. 16:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Guðfinna M Hreiðarsdóttir Formaður
  • Jón Reynir Sigurðsson Varaformaður
  • Gunnar Þórðarson Aðalmaður
  • Ari Klængur Jónsson aðalmaður
  • Rannveig Þorvaldsdóttir Aðalmaður
  • Anna Valgerður Einarsdóttir deildarstjóri barnaverndar
  • Harpa Stefánsdóttir ráðgjafi á fjölskyldusviði
  • Sædís María Jónatansdóttir Starfsmaður Ísafjarðarbæjar
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir 374. fundur félagsmálanefndar Ísafjarðarbæjar
Dagskrá

1.Trúnaðarmál. - 2011090094

Lögð fram sex trúnaðarmál.
Trúnaðarmálin rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar.

2.Félagsleg heimaþjónusta - 2012010079

Lögð fram drög að endurskoðuðu innheimtufyrirkomulagi og gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu ásamt eyðublaði til útreiknings á gjaldi.
Lagt fram til kynningar.

3.Leiguíbúðir. - 2011120059

Lagt fram minnisblað frá Sædísi Maríu Jónatansdóttur þar sem kynntar eru gjafir sem bárust Hlíf, íbúðum aldraðra, frá velunnurum á árinu 2012.
Gefin voru áhöld og efni til skartgripagerðar, sjónvarp, straujárn og tölva. Peningagjafir námu kr. 1.043.800,- og voru notaðar til að endurnýja stóla í samkomu- og mötuneytissal Hlífar. Nýju stólarnir hjálpa til við að gera húsnæðið þægilegra og fallegra fyrir íbúa og gesti.
Gefendur voru ættingjar Ingibjargar Sigurgeirsdóttur í hennar minningu, Bjarni Kristjánsson, Hraðfrystihúsið Gunnvör hf, Húsfélag Hlífar II, Kvenfélagið Hvöt í Hnífsdal, Kvenfélagið Sunna í Reykjafjarðarhreppi, Lyfja hf og Orkubú Vestfjarða.
Minnisblaðið er lagt fram til kynningar og vill félagsmálanefnd þakka fyrir rausnarlegar gjafir og hlýhug í garð íbúa Hlífar.

4.Sérstakar húsaleigubætur - 2007010072

Lögð fram drög að endurskoðuðum reglum um sérstakar húsaleigubætur í Ísafjarðarbæ ásamt eyðublaði um mat á félagslegum aðstæðum vegna umsóknar um sérstkar húsaleigubætur.
Félagsmálanefnd samþykkir drögin og felur starfsmönnum að uppfæra tekju og eignamörk reglnanna þegar velferðarráðuneytið hefur uppfært tekju og eignamörk fyrir árið 2013 skv. reglugerð nr. 873/2001.

5.Húsaleigubætur 2013 - 2012090040

Lögð fram reglugerð um breytingu á reglugerð um húsaleigubætur, nr. 118/2003, með síðari breytingum.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerðir verkefnahóps BSVest. - 2011090092

Lagðar fram fundargerðir 23. og 24. fundar verkefnahóps BSVest.
Fundargerðir lagðar fram til kynningar.

7.Fundargerðir 2010-2012 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði - 2010070042

Lögð fram fundargerð 23. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.
8. Önnur mál.
Fjárhagsaðstoð. 2012-12-0016.
Rætt um reglur um fjárhagsaðstoð og starfsmanni fjölskyldusviðs falið að koma með tillögu að breytingum á næsta fund nefndarinnar.

Fundi slitið.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?