Umhverfis- og framkvæmdanefnd

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
6. fundur 27. nóvember 2014 kl. 08:00 - 10:00 í fundarsal 2.hæð
Nefndarmenn
  • Nanný Arna Guðmundsdóttir formaður
  • Lína Björg Tryggvadóttir varaformaður
  • Kristín Hálfdánsdóttir aðalmaður
  • Óðinn Gestsson aðalmaður
  • Jóna Símonía Bjarnadóttir varamaður
  • Jóhann Birkir Helgason sviðsstjóri umhverfis- og eignasviðs
  • Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
  • Ralf Trylla umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson upplýsingafulltrúi
Dagskrá

1.Málefni kirkjugarða - 2013100065

Lagt er fram bréf Björns Baldurssonar, formanns sóknarnefndar Ísafjarðarsóknar, dags. 20. október sl., þar sem óskað er eftir að Ísafjarðarbær leggi sókninni lið við hirðingu garðanna á árinu 2015.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur undir bókun bæjarráðs varðandi áskorun til innanríkisráðuneytis. Nefndin leggur til við bæjarráð að gert verði ráð fyrir efniskostnaði vegna girðinga og gatna í fjárhagsáætlun 2015.

2.Tillaga til bæjarstjórnar um að draga úr plastpokanotkun - 2014110005

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkir að fela umhverfis- og framkvæmdanefnd að finna leiðir til að minnka plastpokanotkun í sveitarfélaginu. Til að draga verulega úr plastpokanotkun í sveitarfélaginu þarf samstillt átak íbúa, verslunareigenda, sveitarfélagsins og annarra hagsmunaaðila svo að árangur náist.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að horft verði sérstaklega til þess árangurs sem náðst hefur í þessum málum á Stykkishólmi og felur umhverfisfulltrúa að leggja hugmyndir að nánari útfærslu fyrir nefndina.

3.Fjárhagsáætlun 2015 - 2014080027

Rætt um gjaldskrár og fjárhagsáætlun 2015.
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til að framlögð drög að gjaldskrá verði samþykkt. Nefndin óskar eftir að fá frekari upplýsingar um rekstur málaflokksins milli umræðna um fjárhagsáætlun 2015.

4.Eftirlit - Kubbur ehf. - Sorpmál. - 2011030081

Lagðar fram tölur yfir sorpmagn og endurvinnsluefni fyrir árið 2013/14.
Lagt fram til kynningar.

5.Umhverfisstefna Ísafjarðarbæjar - 2011090086

Lögð fram að nýju drög að umhverfisstefnu Ísafjarðarbæjar.
Ákveðið að vinna áfram með málið og taka það upp á næsta fundi.

6.Hámarkshraði í Pollgötu og Krók - 2014110033

Nefndinni falið að kanna kosti þess og galla að hækka hámarkshraða á Pollgötu og í Króki upp í 50 km/klst.
Nefndin tekur ekki undir hugmyndir um 50 km/klst hámarkshraða í Krók og þykir sá hraði einnig of hár á Pollgötu. Hins vegar leggur nefndin til að skoðaður verði 40 km/klst hámarkshraði á Pollgötu.

Fundi slitið - kl. 10:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?