Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
6. fundur 11. nóvember 2016 kl. 11:00 - 12:00 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir aðalmaður
  • Gunnar Páll Eydal aðalmaður
  • Áslaug Jóhanna Jensdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Málstofa um hverfisráð og íbúalýðræði, undirbúningur og skipulag - 2016110026

Lögð er fram íbúalýðræðisskýrsla frá Akureyri síðan í janúar 2016, skýrsla um íbúasamtök (lokalråd) frá 2010 og skýrsla Sambands íslenskra sveitarfélaga um námsferð sveitarstjórnarmanna til Svíþjóð frá september 2016.
Málstofu sem halda átti 5. nóvember sl. var frestað vegna veðurs. Stefnt er að því að málstofan verði haldin eftir áramót árið 2017.
Nefndin óskar eftir fundi með 1-2 fulltrúum hvers hverfisráðs, bæjarstjóra, bæjarritara og sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs fyrir áramót til að fara yfir starfsemi hverfisráða.

2.Verkefni nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu - 2014080062

Verkefni nefndar um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu.
Nefndin mun vinna að sameiginlegu skjali út frá þeim gögnum sem liggja fyrir fundinum og móta tillögu að stefnu Ísafjarðarbæjar um aukið íbúalýðræði.

Fundi slitið - kl. 12:00.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?