Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
4. fundur 20. febrúar 2015 kl. 14:00 - 15:52 í fundarsal 2.hæð
Nefndarmenn
  • Arna Lára Jónsdóttir aðalmaður
  • Gunnar Páll Eydal aðalmaður
  • Áslaug Jóhanna Jensdóttir varamaður
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá

1.Öldungaráð - 2014080062

Fulltrúar félags eldri borgara á Ísafirði, félags eldri borgara á Flateyri og íþróttafélagsins Kubbs mæta til fundarins til að ræða mögulega útfærslu öldungarráðs.
Fundarmenn ræddu hin ýmsu hagsmunamál sín, svo sem snjómokstur, íbúðamál og félagsstörf.
Rætt var um að líta bæri til framsetningar á öldungarráðum þeirra bæjarfélaga sem væru búin að stofna öldungarráð, þ.e. Hafnarfjarðar og Hveragerðis.
Ákveðið að kanna áhuga nágranna sveitarfélaganna um stofnun sameiginlegs öldungaráðs. Í framhaldinu yrði lagt til við bæjarstjórn að stofna öldungaráð í samræmi við þær umræður sem fram fóru á fundinum. Nefndin felur formanni að gera drög að samþykktum um öldungaráð.

Fulltrúar eldri borgara yfirgáfu fundinn kl. 15:23.

Gestir

  • Bergur Torfason, Guðmundur Hagalínsson, Árný Oddsdóttir, Sigríður Þórðardóttir, Valdís Veturliðadóttir - mæting: 14:00

2.Ungmennaráð - 2014080062

Nefnd um íbúalýðræði og virkari stjórnsýslu mun leggja til við bæjarstjórn að stofna ungmennaráð. Nefndin felur formanni að gera drög að samþykktum um ungmennaráð.

3.Hverfisráð Ísafjarðarbæ - 2011030002

Lagt er fram minnisblað Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur, dags. 19. janúar sl. um stofnun hverfisráða hjá Ísafjarðarbæ.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:52.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?