Íþrótta-og tómstundanefnd - 137. fundur - 9. janúar 2013

1.

 2011020053 - Starfsmannastefna Ísafjarðarbæjar. - Endurskoðun.

 

Lögð fram til kynningar drög að nýrri starfsmannastefnu Ísafjarðarbæjar.

 

   

2.

 2012110034 - Endurskoðun erindisbréfa nefnda.

 

Lagt fram erindisbréf íþrótta- og æskulýðsnefndar frá 2002.
Formanni falið að koma með breytingatillögur á næsta fund í samræmi við umræður á fundinum.

 

   

3.

 2012110041 - Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2012.

 

Val á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar 2012. Átta tilnefningar bárust nefndinni um íþróttamann Ísafjarðarbæjar að þessu sinni.

Nefndin tók einróma ákvörðun um valið og verður sú ákvörðun kynnt sunnudaginn 20. janúar n.k. kl. 16:00 í hófi sem haldið verður í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.

 

   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:35.

 

Fundinn sátu:

Kristján Óskar Ásvaldsson

Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Gauti Geirsson

Margrét Halldórsdóttir, sviðsstjóri skóla- og tómstundasviðs.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?