Fræðslunefnd - 345. fundur - 4. júní 2014

Dagskrá:
1.  2014030064 - Verkefnalisti fræðslunefndar
 Lagður fram verkefnalisti fræðslunefndar.
 Gerð var grein fyrir þeim verkefnum sem liggja fyrir og eru í vinnslu.
   
2.  2014050094 - Skóladagatöl 2014-2015
 Lögð fram skóladagatöl leikskólanna Sólborgar, Eyrarskjóls, Grænagarðs, Tjarnarbæjar og Laufáss fyrir skólaárið 2014-2015.
 Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við skóladagatölin.
   
3.  2014050104 - Ósk um að hafa lokað 24. og 31. des.
 Lagt fram bréf, dagsett 28. maí 2014, frá leikskólastjórum Sólborgar, Laufáss, Tjarnarbæjar og Grænagarðs þar sem óskað er eftir að fá að hafa leikskólana lokaða á aðfangadag og gamlársdag. Leikskóli Hjallastefnunnar, Eyrarskjól, er lokaður þessa daga.
 Fræðslunefnd óskar eftir umsögn frá foreldraráðum leikskólanna og jafnframt að þetta verði kynnt fyrir öllum foreldrum með því að hengja upp auglýsingu í leikskólunum.
   
4.  2014040030 - Skóladagatöl 2014-2015
 Lögð fram skóladagatöl fyrir Grunnskóla Önundarfjarðar, Grunnskólann á Suðureyri og Grunnskólann á Þingeyri fyrir skólaárið 2014-2015.
 Fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við skóladagatölin.
   
5.  2013090015 - Skýrslur og áætlanir skóla, skólaárið 2013-2014
 Lagðar fram skýrslur um innra mat í Grunnskólanum á Ísafirði og sjálfsmatsskýrsla Grunnskóla Önundarfjarðar.
 Fræðslunefnd þakkar fyrir góðar skýrslur.
   
6.  2010080057 - Stefnumótun í atvinnumálum Ísafjarðarbæjar.
 Lagt fram minnisblað frá Margréti Halldórsdóttur, sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs, þar sem kemur fram hvað er á ábyrgð fræðslunefndar í tengslum við atvinnumálastefnu Ísafjarðarbæjar.
 Fræðslunefnd frestar málinu til næsta fundar nefndarinnar.
   
7.  2013110021 - Umsókn um styrk vegna heimsóknar erlendra gesta
 Lagt fram skjal með umsögn pólskra gesta Grunnskólans á Ísafirði um dvöl þeirra hér á landi.
 Lagt fram til kynningar.
   
8.  2014060001 - Niðurstöður 2014
 Lögð fram skýrsla frá Rannsókn og greiningu um Hagi og líðan ungs fólks í Ísafjarðarbæ. Niðurstöður rannsóknar meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk árið 2014.
 Fræðslunefnd felur sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs að vinna að málinu áfram í samræmi við umræður á fundinum ásamt skólastjórum grunnskólanna.
   
9.  2014050095 - Aðgengi fatlaðra
 Lögð fram umsögn formanns MND félagsins eftir fund hans með unglingum og erindi nemenda í Grunnskólanum á Ísafirði á MND þingi, þar sem hann segir að líklega eiga Ísfirðingar efnilegustu og flottustu ungmenni á Íslandi og jafnvel þótt víðar væri leitað.
 Lagt fram til kynningar.
   
10.  2014060002 - Ósk um breytingu á reglum um nemendaheimsóknir.
 Lagt fram bréf frá Sveinfríði Olgu Veturliðadóttur, skólastjóra Grunnskólans á Ísafirði, þar sem óskað er eftir breytingum á reglum um nemendaheimsóknir í grunnskóla, óskað er eftir breytingum á 2. gr.
 Fræðslunefnd samþykkir breytinguna á 2. gr.
   

11.  2012030049 - Fréttabréf
 Lagt fram maí-fréttabréf Grunnskólans á Ísafirði.
 Lagt fram til kynningar.
   
12.  2014060005 - Ósk um aukinn fjölda kennslustunda veturinn 2014-2015
 Lagt fram bréf, dagsett 2. júní 2014, frá Stefaníu Ásmundsdóttur, skólastjóra Grunnskólans á Þingeyri, þar sem óskað er eftir frekari kennsluúthlutunartímum skólaárið 2014-2015, til þess að sinna nýjum nemendum enn frekar. Óskað er eftir að minnsta kosti 4 aukatímum.
 Fræðslunefnd felur sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs að skoða málið betur með skólastjóra Grunnskólans á Þingeyri.
   
13.  2014060006 - Skóladagatal og áætlun fyrir skólaárið 2014-2015
 Lagt fram skóladagatal Tónlistarskóla Ísafjarðar fyrir skólaárið 2014-2015, og áætlun um stöðugildi við skólann.
 Lagt fram til kynningar og fræðslunefnd gerir ekki athugasemd við skóladagatalið.
   
14.  2013100054 - Úthlutun fjárframlaga til tónlistarskóla
 Lagður fram samstarfssamningur Tónlistarskóla Ísafjarðar annarsvegar og Listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar hinsvegar við Ísafjarðarbæ.
 Fræðslunefnd felur sviðsstjóra skóla- og tómstundasviðs að vinna áfram að málinu í samvinnu við skólastjóra skólanna.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16.30


Gísli Halldór Halldórsson   

Helga Dóra Kristjánsdóttir
Auður Helga Ólafsdóttir   

Benedikt Bjarnason
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir   

Sigurlína Jónasdóttir
Margrét Halldórsdóttir   

Er hægt að bæta efnið á síðunni?