Almannavarnanefnd – sameinuð - 12. fundur - 28. desember 2012

Fundinn sátu: Hlynur Hafberg Snorrason, yfirlögregluþjónn, Sigurður Mar Óskarsson, fulltrúi björgunarsveita, Hermann Hermannsson, slökkviliðsmaður, Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps var í símasambandi og Jóhann Birkir Helgason, bæjartæknifræðingur sem einnig ritaði fundargerð

 

Dagskrá:

 

1.      Snjóflóðahætta í Ísafjarðarbæ og Súðavík

Á fundinn er mættur Magni Hreinn Jónsson frá Veðurstofu Íslands, hann kynnti rýmingar sem átt hafa sér stað. Í Ísafjarðarbæ voru rýmd húsin: Höfði, Engi, Kúluhús, Steiniðjureitur, Funasvæði og Seljaland, þessi svæði voru rýmd 27. desember.

Væntanlegar rýmingar eru: Flugstöð á Ísafirði, Félagsheimilið, Heimabær og Hraun í Hnífsdal, Fremstu hús í Dýrafirði, við Núp verður óskað eftir því að halda sig sem fjærst gilinu.  Veðrará í Önundarfirði, Kirkjuból í Korpudal, Fremri og Neðri Breiðadalur, Sólbakki og Tankur á Flateyri.  Gamla byggðin og frystihúsið í Súðavík.

Væntanlegar rýmingar taka gildi kl. 18:00 föstudaginn 28. desember 2012.  Snjóflóðaeftirlitsmenn eru að kanna aðstæður þessa stundina.

 

2.      Snjómokstur.

Snjómokstursmenn verða tilbúnir með tæki ef á þarf að halda.

 

Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og undirrituð.  Fundi slitið kl. 13:55.

 

Jóhann Birkir Helgason

Hlynur H. Snorrason    

Hermann Hermannsson

Sigurður Mar Óskarsson

Ómar Már Jónsson

Er hægt að bæta efnið á síðunni?