Bæjarstjórn

Fundargerðir hverfisráða Ísafjarðarbæjar, auk fundargerða fastanefnda, starfshópa og annarra nefnda sveitarfélagsins af fundum sem haldnir voru til og með ársins 2017 má finna undir aðrar fundargerðir
448. fundur 19. desember 2019 kl. 17:00 - 17:48 í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði
Nefndarmenn
  • Sunna Einarsdóttir varamaður
  • Arna Lára Jónsdóttir aðalmaður
  • Steinunn Guðný Einarsdóttir varamaður
  • Marzellíus Sveinbjörnsson aðalmaður
  • Sigurður Jón Hreinsson aðalmaður
  • Jónas Þór Birgisson varamaður
  • Sif Huld Albertsdóttir aðalmaður
  • Kristján Þór Kristjánsson forseti
  • Þórir Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
  • Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari
Dagskrá
Forseti leggur til að mál 2019120023 um umsóknir um lóðir að Tungubraut 2-4-6-8-10, af 532. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar, verði tekið á dagskrá bæjarstjórnar með afbrigðum og verði á sett inn sem 5. mál á dagskrá fundarins.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.
Tillagan samþykkt 9-0.

1.Umsókn um lóð fyrir atvinnuhúsnæði. Stefnisgata 5 - 2019090004

Tillaga 531. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11. desember sl. um að Nostalgía ehf. fái lóð við Stefnisgötu nr. 5, Suðureyri skv. núgildandi skipulagi og umsókn með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

2.Umsókn um lóð fyrir atvinnuhúsnæði. Skólagata 8 - 2019090005

Tvær tillögur frá 531. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar.

A. Tillaga 531. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11. desember sl., um að Nostalgía ehf. fái lóð við Skólagötu 8, Suðureyri, skv. núgildandi skipulagi og umsókn með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun. Gatnagerðargjald skal lagt á skv. a lið 3. gr. samþykktar um gatnagerðargjald í Ísafjarðarbæ.

B. Tillaga 531. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar frá 11. desember sl., um að heimila óverulega breytingu á deiliskipulagi Suðureyrarmala. Breytingin felur í sér að landnotkun Skólagötu 8,10 og A-Stíg 1 verði breytt úr íbúðarlóðum í lóðir fyrir blandaða starfsemi.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Arna Lára Jónsdóttir og Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

3.Nefndarmenn 2018-2022 - breytingar í velferðarnefnd - 2018050091

Tillaga um breytingu á varamanni Í-listans í velferðarnefnd.

Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir verður varamaður í stað Gunnhildar Bjarkar Elíasdóttur.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

4.Nefndarmenn 2018-2022 - breytingar í skipulags- og mannvirkjanefnd - 2018050091

Tillaga um breytingu á aðalmönnum Sjálfstæðisflokks í skipulags- og mannvirkjanefnd.

Daníel Jakobsson verður aðalmaður í stað Sigurðar Mar Óskarssonar.
Þóra Marý Arnórsdóttir verður formaður nefndarinnar í stað Sigurðar.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Sigurður J. Hreinsson og Guðmundur Gunnarsson.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0.

5.Umsókn um lóðir - Tungubraut 2-4-6-8-10 - 2019120023

Tillaga frá 532. fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 18. des. sl., um að Hrafnshóll ehf., fái raðhúsalóðir við Tungubraut nr. 2-4-6-8 og 10 Ísafirði, skv. umsókn, með þeim reglum sem í gildi eru og settar kunna að verða. Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Þórir Guðmundsson, Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri og Arna Lára Jónsdóttir.

Forseti ber tillöguna upp til atkvæða.

Tillagan samþykkt 9-0. Arna Lára gerir grein fyrir atkvæði sínu. Þórir gerir grein fyrir atkvæði sínu.

6.Barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum - 167 - 1912003F

Fundargerð 167. fundar barnaverndarnefndar sem haldinn var 12. desember sl. Fundargerðin er í 3 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

7.Bæjarráð - 1086 - 1912011F

Fundargerð 1086. fundar bæjarráðs sem haldinn var 9. desember sl. Fundargerðin er í 21 lið.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

8.Bæjarráð - 1087 - 1912016F

Fundargerð 1087. fundar bæjarráðs sem haldinn var 16. desember sl. Fundargerðin er í 12 liðum.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Steinunn Guðný Einarsdóttir, Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri, Arna Lára Jónsdóttir, Marzellíus Sveinbjörnsson og Jónas Þór Birgisson.

Arna Lára, varaforseti tekur við stjórn fundarins kl. 17:28 meðan Kristján Þór tekur til máls. Kristján tekur aftur við stjórn fundarins kl. 17:32.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
  • Bæjarráð - 1087 Árið 2013 var komið á aflamarki Byggðastofnunar til þess að styðja við byggðalög í bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Var þessu fyrirkomulagi komið á til þess að tryggja betri fyrirsjáanleika við úthlutun, styrkja útgerðir í þeim byggðarlögum sem hafa átt undir högg að sækja og úthluta heimildunum til lengri tíma.

    Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða á Byggðastofnun að hafa samráð við viðkomandi sveitarfélag áður en skrifað er undir samning við samstarfsaðila. Bæjarráð hefur kynnt sér áform umsækjenda og haldið með þeim fund en vill árétta að sá kostur sem Byggðastofnun hefur kynnt er tillaga Byggðastofnunar sem á eftir að hljóta staðfestingu stjórnar stofnunarinnar.

    Sem samráðsaðili telur bæjarráð Ísafjarðarbæjar mikilvægt að horft sé til þess hvaða áhrif úthlutun á aflmarki Byggðastofnunar hefur á núverandi útgerð og vinnslu á Flateyri. Bæjarráð leggur áherslu á að við úthlutun aflamarks stjórnar Byggðastofnunar séu heildar hagsmunir byggðalagsins hafðir að leiðarljósi og aflamarkið nýtist til sem mestrar verðmætasköpunar þar.

9.Hafnarstjórn - 208 - 1912005F

Fundargerð 208. fundar hafnarstjórnar sem haldinn var 6. desember sl. Fundargerðin er í 10 liðum.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

10.Íþrótta- og tómstundanefnd - 202 - 1911024F

Fundargerð 202. fundar íþrótta- og tómstundanefndar sem haldinn var 4. desember sl. Fundargerðin er í 4 liðum.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti, Marzellíus Sveinbjörnsson, Arna Lára Jónsdóttir, Sif Huld Albertsdóttir og Þórir Guðmundsson.

Arna Lára tekur við stjórn fundarins kl. 17:43 meðan Kristján tekur til máls. Kristján tekur aftur við stjórn fundarins kl. 17:44.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Skipulags- og mannvirkjanefnd - 531 - 1912010F

Fundargerð 531. fundar skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var 11. desember sl. Fundargerðin er í 10 liðum.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti og Sigurður J. Hreinsson.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Starfshópur um framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa - 4 - 1804006F

Fundargerð 4. fundar starfshóps um framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa sem haldinn var 5. desember sl. Fundargerðin er í 1 lið.
Til máls tók: Kristján Þór Kristjánsson, forseti.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13.Velferðarnefnd - 444 - 1911010F

Fundargerð 444. fundar velferðarnefndar sem haldinn var 5. desember sl. Fundargerðin er í 5 liðum.
Til máls tóku: Kristján Þór Kristjánsson, forseti og Þórir Guðmundsson.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 17:48.

Er hægt að bæta efnið á síðunni?