Velferðarsvið – Stuðningsfulltrúi í búsetuþjónustu
Velferðarsvið Ísafjarðarbæjar auglýsir eftir kvenkyns stuðningsfulltrúa í búsetuþjónustu fatlaðs fólks. Um er að ræða 70% starf í vaktavinnu. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Óskað er eftir jákvæðri og drífandi manneskju sem hefur ánægju af samskiptum en starfið er afar fjölbreytt og gefandi.
Helstu verkefni
- Aðstoða þjónustunotendur við athafnir daglegs lífs
- Félagslegur stuðningur
- Góð samskipti og samstarf við þjónustunotendur og aðstandendur
- Þátttaka í starfsmannafundum og samvinna við samstarfsfólk
- Framfylgja vinnureglum sem ákveðnar eru og stuðla með því að samræmdum vinnubrögðum
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Samviskusemi og stundvísi
- Jákvæðni og sveigjanleiki
- Frumkvæði og þolinmæði
- Góð íslenskukunnátta
- Bílpróf
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag (Kjöl/VerkVest).
Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2024. Umsóknum ásamt ferilskrá skal skilað á netfangið ragnhildursv@isafjordur.is. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Inga Sveinsdóttir, forstöðumaður í búsetu í síma 450-8000 eða í gegnum ofangreint netfang.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
-Við þjónum með gleði til gagns-