Eyrarskjól — Matráður (tímabundin ráðning)

Matráður/kokkur annast gerð matseðla út frá næringarfræðilegum sjónarmiðum. Annast matargerð. Hefur yfirumsjón með störfum aðstoðarmatráðs. Um er að ræða 60%-75% starf í nokkra mánuði og viðkomandi þarf að getað hafið störf sem fyrst.

Ábyrgðarsvið:

  • Setur upp fjölbreytta og næringarríka matseðla sem mæta næringarþörf barna.
  • Skólinn telur ca 87 börn og ca 30 kennara og annað starfsfólk í allt.
  • Hafa/afla sér þekkingar á sérfæði.
  • Fylgist með rekstrarstöðu eldhúss hjá skólastýru og leitast við að innkaup og skipulagning séu sem hagkvæmust.
  • Hefur umsjón með því að tæki og búnaður í eldhúsi starfi eðlilega og lætur stjórnendur vita ef viðgerða/lagfæringa er þörf.
  • Fylgist með borðbúnaði og öðrum lausamunum í eldhúsi og sér um endurnýjun og innkaup þegar þörf er á í samráði við stjórnendur skólans.
  • Situr þá fundi sem skólastjórnendurfara fram á er tengjast starfssviði matráðs.
  • Skuldbindur sig til að vinna samkvæmt þeim sameiginlegu ákvörðunum sem teknar eru á starfsmannafundum og/eða í starfsmannaviðtölum.

Dagleg verkefni:

  • Gerð og/eða móttaka matar.
  • Sér um morgunmat og frágang
  • Sér um gerð matseðla fyrir hvern mánuð skólaársins og setur inn á heimasíðu skólans.
  • Sér um innkaup á matar-, þurr- og ræstivörum skólans.
  • Sinnir ásamt aðstoðarmatráði ræstingu eldhústækja, áhalda, vagna og almenns uppvasks.

Aðstoðarmatráður er staðgengill matráðs/kokks og sér um hans/hennar störf þegar hann er fjarverandi. Vinnur í samstarfi við matráð og sinnir þeim störfum sem matráður ætlar honum/henni.
Matráður/kokkur sinnir störfum sem stjórnendur ætla viðkomandi með tilliti til starfssviðs.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Elda hollan og góðan mat
  • Gerð matseðla
  • Versla inn
  • Hugsa um eldhúsið eins og þú eigir það sjálfur/sjálf
  • Njóta þess að eiga samskipti við fjölbreyttan hóp starfsfólks og einstaklega skemmtilegra barna
  • Stuðla að jákvæðum anda í starfsmannahópnum
  • Hafa gaman í vinnunni

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði í starfi
  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi

  • Starfsfólk er í fríu fæði

Nánar um leikskólann og allar upplýsingar á heimasíðu Eyrarskjóls https://eyrarskjol.hjalli.is.

Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Einarsdóttir, leikskólastýra. Vinsamlegast sendið póst á ingibjorgei@hjalli.is

Sækja um

Er hægt að bæta efnið á síðunni?