Starfshópur til undirbúnings tilnefningar heiðursborgara - 3. fundur - 10. apríl 2006
Mættir eru: Birna Lárusdóttir, formaður starfshópsins, Magnús Reynir Guðmundsson, Inga S. Ólafsdóttir og Fylkir Ágústsson. Fundargerð ritaði Þorleifur Pálsson.
1. Framhald á undirbúningsvinnu vegna tilnefningar heiðursborgara Ísafjarðarbæjar.
Haldið var áfram vinnu við undirbúning dagskrár 200. fundar bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, sem haldinn verður í íþróttahúsinu á Torfnesi þann 27. apríl n.k., en eini dagskrárliður fundarins er tilnefning heiðursborgara Ísafjarðarbæjar.
Farið í skoðunarferð í íþróttahúsið á Torfnesi og skoðaðar aðstæður.
Næsti fundur starfshópsins verður miðvikudaginn 19. apríl n.k. kl. 10:00.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl.
Birna Lárusdóttir, formaður starfshópsins.
Magnús Reynir Guðmundsson.
Inga S. Ólafsdóttir.
Fylkir Ágústsson.
Þorleifur Pálsson, ritari.