Dægradvöl

Nemendum í 1.-4. bekk í grunnskólum Ísafjarðarbæjar býðst að fara í dægradvöl eftir að skóla lýkur á daginn þar til klukkan fjögur. Starfsfólk aðstoðar börnin við að fara á réttum tíma í skipulagðar tómstundir eða skapa þeim rými fyrir frjálsan leik.

Flateyri, Suðureyri og Þingeyri
Starfið að mestu fram í húsnæði skólanna. Skólastjórar eru yfirmenn dægradvalar og er sótt um hjá þeim.

Ísafjörður
Á Ísafirði er dægradvölin á annarri hæð í Sundhöll Ísafjarðar. Forstöðumaður er Eva Einarsdóttir.
Skráning í dægradvöl á Ísafirði er á daegradvol.isafjordur.is.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér innritunarreglur fyrir dægradvöl.


Dægradvöl á Ísafirði:
Austurvegi 9
400 Ísafjörður
Sími: 450 8059
daegradvol@isafjordur.is

Er hægt að bæta efnið á síðunni?