Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 30. fundur - 21. júní 2016
Dagskrá:
1. |
Fjórðungssamband Vestfirðinga - ýmis mál og fundargerðir 2016/2017 - 2016020005 |
|
Lögð fram beiðni Aðalsteins Óskarssonar f.h. Fjórðungssambands Vestfirðinga, dags. 24. maí, um umsögn um tillögu að gerð svæðisáætlunar fyrir Vestfirði. |
||
Nefndin þakkar framlagða tillögðu og hvetur Fjórðungssambandið til áframhaldandi vinnu með þeirri von að skýrslan verði vegvísir að framtíðarsýn svæðisins. |
||
|
||
2. |
Bílastæði innan þéttbýlis - 2016030025 |
|
Lagður fram tölvupóstur umhverfisfulltrúa Ísafjarðarbæjar, dags. 14.6.2016, til skipulags- og mannvirkjanefndar um nýtingu lóðar við Sindragötu 4a undir bílastæði. |
||
Nefndin þakkar tæknideild fyrir vel unna tillögu. |
||
|
||
3. |
Umsókn um rekstur tjaldsvæðis - 2016060041 |
|
Lögð fram umsókn Daníels Jakobssonar f.h. Hótels Ísafjarðar dags. 15.6.2016 um leyfi til reksturs tjaldsvæðis við heimavist Menntaskólans á Ísafirði. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
Gamlir ruslahaugar innan þéttbýlis. - 2016060055 |
|
Lögð fram yfirlitsmynd umhverfisfulltrúa þar sem merktir eru gamlir ruslahaugar í Skutulsfirði. |
||
Tæknideild falið að vinna að lausn á þeim vanda sem upp er kominn vegna jarðvegsframkvæmda á Suðurtanga. Rætt um það vandamál sem blasir við þegar hafist verður handa við jarðvegsvinnu á ákveðnum uppfyllingum á Ísafirði og hvernig unnið skuli úr gömlu sorpi sem komið hefur upp á undanförnum árum. |
||
|
||
5. |
Frumvörp og þingsályktunartillögur til umsagnar 2016 - 2016010027 |
|
Lögð fram beiðni umhverfis- og auðlindaráðuneytis dags. 8. júní um tillögur og ábendingar vegna endurskoðunar laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Erla Rún Sigurjónsdóttir |
Kristín Hálfdánsdóttir |
|
Jóna Símonía Bjarnadóttir |
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson |
|
Ralf Trylla |
Brynjar Þór Jónasson |
|
|