Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 28. fundur - 24. maí 2016
Gísli Elís Úlfarsson boðaði forföll vegna veikinda sem og varamaður hans Linda Björk Pétursdóttir.
Dagskrá:
1. |
Samband íslenskra sveitarfélaga, ýmis erindi og fundargerðir 2016 - 2016020019 |
|
Bæjarráð vísaði bréfi Guðjóns Bragasonar, sviðsstjóra lögfræði- og velferðarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 31. mars sl., varðandi fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga, til umsagnar í umhverfis- og framkvæmdanefnd. |
||
Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur undir niðurlag bréfsins og leggur áherslu á að reglur um heilbrigðiseftirlit verði endurskoðaðar með það að markmiði að auka skilvirkni. |
||
|
||
2. |
þjónustuhús við Dynjanda í Arnarfirði - 2016050048 |
|
Lagt fram bréf dags. 14. maí frá Þórhalli Arasyni og Katli Berg Magnússyni vegna þjónustuhúss við Dynjanda í Arnarfirði. |
||
Nefndin fagnar frumkvæði bréfritara en ítrekar að umsagnar- og leyfisveitingarvald liggur annars staðar. |
||
|
||
3. |
Samþykkt um búfjárhald - 2016010004 |
|
Lögð fram athugasemd frá Félagi sauðfjárbænda á Vestfjörðum við 7. grein draga að samþykkt Ísafjarðarbæjar um búfjárhald. |
||
Nefndin þakkar innsenda athugasemd en sér ekki þörf á því að binda ákvæði um hámarksfjölda sauðfjár í samþykktina. |
||
|
||
4. |
Græn vika 2016 - 2016040060 |
|
Græn vika í Ísafjarðarbæ. |
||
Rætt um Græna viku, umhverfisátak sem nú stendur yfir í Ísafjarðarbæ; gáma undir garðaúrgang, götusóp, hreinsunarátök hverfisráða, stofnana og fyrirtækja o.fl. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:25
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Kristín Hálfdánsdóttir |
Jóna Símonía Bjarnadóttir |
|
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson |
Ralf Trylla |
|
|