Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 20. fundur - 13. október 2015
Dagskrá:
1. |
Gjald á einstaklinga vegna sorpförgunar í móttökustöð Funa - 2015080054 |
|
Tillaga til umhverfis- og framkvæmdanefndar um að vísa málinu áfram til bæjarstjórnar. |
||
Umhverfis- og framkvæmdanefnd telur þessa leið ekki færa að svo stöddu, en leggur til að gjaldtaka fyrir förgun óvirks úrgangs verði með öðrum hætti í næsta útboði. |
||
|
||
2. |
Ágengar plöntur 2016 - 2015080042 |
|
Lögð fram tillaga um átak gegn útbreiðslu lúpínu og skógarkerfils, unnin af Matthildi Ástu Hauksdóttur garðyrkjustjóra og Ralf Trylla umhverfisfulltrúa dags. 30.9.2015 með meðfylgjandi teikningum. |
||
Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að ráðist verði í átakið til fjögurra ára og gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun 2016 og fimm ára áætlun. |
||
|
||
3. |
Snjómokstursreglur og mokstursleiðir í Ísafjarðarbæ - 2011110042 |
|
Lagður fram tölvupóstur dags. 10.9.2015 frá Sighvati Jóni Þórarinssyni um snjómokstursreglur í Ísafjarðarbæ. |
||
Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur undir mikilvægi þess að gera þjónustuna skýrari og skilvirkari og að hún miðist við veðurfar frekar en dagatal. Nefndin felur starfsmönnum tæknideildar að skýra mokstursreglurnar í samstarfi við Vegagerðina. |
||
|
||
4. |
Minnisvarði um Kirkjubólsfeðga - 2014050072 |
|
Mál tekið fyrir á ný. |
||
Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar því til fjárhagsáætlunar 2016. |
||
|
||
5. |
Strandlínan á Ísafirði ? Eyrin á Ísafirði í fortíð og nútíð - 2015100021 |
|
Lagt fram erindi frá Margréti Birnu Auðunsdóttur og Heiðu Maríu Loftsdóttur um strandlínu á Ísafirði, dags. 7.10.2015. |
||
Umhverfis- og framkvæmdanefnd lýsir yfir ánægju með framkomnar tillögur og leggur til að málinu verði vísað til umfjöllunar í hátíðarnefnd vegna 20 ára afmælis Ísafjarðarbæjar og 150 ára kaupstaðarafmælis Ísafjarðar. |
||
|
||
6. |
Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048 |
|
Bæjarráð leggur til að gjaldskrár hækki almennt um 4,3%, sem er verðbólguáætlun Seðlabankans frá 19. ágúst sl., en sú tillaga er í samræmi við tillögu Sambands íslenskra sveitarfélaga um að sveitarfélög noti forsendur þjóðhagsspár við útreikninga um verðlag 2016. |
||
Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við tillögu bæjarráðs um 4,3% hækkun gjaldskráa. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:20
Nanný Arna Guðmundsdóttir |
|
Gunnar Jónsson |
Jónas Þór Birgisson |
|
Jón Reynir Sigurðsson |
Gísli Elís Úlfarsson |
|
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson |
Ralf Trylla |
|
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir |