Stjórn skíðasvæðis - 8. fundur - 23. janúar 2007
Á fundinn mættu: Steingrímur Einarsson, formaður, Hermann Hermannsson, Arna Lára Jónsdóttir, Jón Páll Hreinsson, Sigríður Kristjánsdóttir, verkefnastjóri, Rúnar Óli Karlsson, atvinnu- og ferðamálafulltrúi Ísafjarðarbæjar og Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Fundargerð ritaði Jón Björnsson
Þetta var gert:
1. Markaðssetning Skíðasvæðis Ísafjarðabæjar.
Kynnt drög að kynningarmálum Skíðasvæðis Ísafjarðarbæjar. Kappkosta þarf að hefja markaðssetningu þegar í vetur. Ræddar voru ýmsar leiðir í markaðssetningu og kostnaður vegna þeirra. Rætt um aðkomu annarra þjónustuaðila að markaðsátaki Skíðasvæðisins.
Leggja þarf áherslu á heimasíðu Skíðasvæðisins. Heimasíðan verður þungamiðja í markaðsátaki, enda verði hún kynnt vel og auglýst. Samþykkt var að hefja þegar undirbúning að auglýsingaherferð, sem hrundið verði í framkvæmd sem fyrst.
2. Afsláttarkjör á Skíðasvæði.
Rætt var um afsláttarkjör fyrir skíðahópa á Skíðasvæði veturinn 2007. Ákveðið var að tilboð yrði gert í hvern hóp, miðað við stærð, dagafjölda, tímabil heimsóknar o.fl.
3. Önnur mál.
Rætt um nauðsyn þess að koma á skíðaleigu í komandi framtíð.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 13:00.
Steingrímur Einarsson, formaður.
Hermann Hermannsson.
Arna Lára Jónsdóttir.
Jón Páll Hreinsson.
Sigríður Kristjánsdóttir, verkefnastjóri.
Rúnar Óli Karlsson, atvinnu- og ferðamálafulltrúi.
Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.