Starfshópur um endurskoðun sorpmála - 6. fundur - 23. janúar 2009
Mættir: Svanlaug Guðnadóttir, formaður, Sigurður Mar Óskarsson, Vernharður Jósefsson, stöðvarstjóri, Ralf Trylla, umhverfisfulltrúi og Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs, sem einnig ritaði fundargerð.
1. Samvinna sveitarfélaga á Vestfjörðum um sorpmál.
Mættir til fundar eru Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík, Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri í Súðavík, á símafundi eru mætt Arnheiður Jónsdóttir og Ari Hafliðason frá Vesturbyggð.
Rætt um sorphirðumál og sorpeyðingu og samvinnu sveitarfélaganna. Aðilar sammála því að sveitarfélögin á Vestfjörðum hafi samráð um sorpmál og láti vinna svæðisáætlun.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:30.
Svanlaug Guðnadóttir, formaður.
Ralf Trylla, umhverfisfulltrúi.
Sigurður Mar Óskarsson.
Vernharður Jósefsson, stöðvarstjóri.
Jóhann Birkir Helgason, sviðsstjóri framkvæmda- og rekstrarsviðs.