Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis - 45. fundur - 15. maí 2015
Þetta var gert:
1. Framvinduskýrsla fyrir maí 2015. 2011-12-0009.
Lögð fram framvinduskýrsla fyrir maí 2015. Skv. framvinduskýrslu er verkið tvær vikur á eftir áætlun. Gert er ráð fyrir að þessum áfanga ljúki 15. júní 2015.
Tilboðsupphæð verktaka er kr. 307.457.181,- , samþykktir hafa verið reikningar fyrir kr. 213.167.229,-. Alls hefur verið framkvæmt fyrir 68,77% af samningsupphæð.
Áætlaður lokakostnaður er 285 millj. sem skýrist af því að búið er að falla frá uppsetningu loftræsikerfis.
Jóhann Birkir fór yfir stöðu mála á framkvæmdum við frágang innanhúss.
Lagt fram til kynningar.
2. Búnaðarkaup 2011-12-0009.
Rætt um búnaðarkaup á hjúkrunarheimilið Eyri.
Ákveðið að kaupa rúm og náttborð í öll 30 rýmin. Jóhanni falið að senda nefndarmönnum áætlaðan kostnað á öðrum búnaði í heimilið.
3. Leigugreiðslur 2011-12-0009.
Rætt um verðbætur á leigugreiðslur. Skv samningi byrjar samningurinn ekki að verðbætast fyrr en húsið er tekið út af Framkvæmdasýslu ríkisins. En ekki frá undirskrift samnings. Gísla Halldóri bæjarstjóra falið að vinna í málinu.
4. Vettvangsferð með arkitektum
VA-arkitektar komu í heimsókn til Ísafjarðar, byggingarnefndin fór í vettvangsferð um Eyri með þeim. Rætt við Indro Indriða Candi eftir ferðina og menn á heildina litið ánægðir með hvernig til hefur tekist. Gert er ráð fyrir að Indro komi aftur í lokaúttekt 15. júní.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 14:05.
Sigurður Pétursson, formaður.
Gunnhildur Elíasdóttir
Kristín Hálfdánsdóttir
Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri
Jóhann Birkir Helgason