Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis - 37. fundur - 20. ágúst 2014
Þetta var gert:
1. Erindisbréf nefndarinnar. 2012-11-0034.
Formaður fór yfir erindisbréf nefndar um byggingu hjúkrunarheimils á Ísafirði.
Sviðsstjóra falið að lagfæra erindisbréfið í samræmi við umræður á fundinum.
2. Staða framkvæmda. 2011-12-0009.
Lagðar fram framvinduskýrslur fyrir maí, júní og júlí 2014. Skv. framvinduskýrslum er verkið nú um 4 vikum á eftir áætlun.
Tilboðsupphæð verktaka er kr. 464.112.073,-, samþykktir hafa verið reikningar fyrir kr. 416.169.937,-. Alls hefur verið framkvæmt fyrir 89,7 % af samningsupphæð.
Samþykkt að breyta loftræsikerfi að tillögu byggingarstjóra og hönnuða VSÓ-Ráðgjöf.
Byggingarstjóri fór yfir stöðu mála og kynnti framkvæmdirnar.
3. Næstu skref. 2011-12-0009.
Rætt um fjármögnun framkvæmdanna og stöðu hönnunar lóðar.
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála um fjármögnun og sviðsstjóri yfir stöðu hönnunar og útboðs lóðar.
4. Viljayfirlýsing milli Heilbrigðisstofnunar og Ísafjarðarbæjar. 2013-04-0026.
Nefndin ræddi um rekstur hjúkrunarheimilsins og fól bæjarstjóra ræða við heilbrigðisráðuneytið um samning um reksturinn.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:07.
Sigurður Pétursson formaður.
Kristín Hálfdánsdóttir,
Magnús Reynir Guðmundsson
Arna Lára Jónsdóttir,
Gunnhildur Elíasdóttir
Ágúst Gíslason.
Gísli Halldór Halldórsson
Grétar Þórðarson
Halldór Hermannsson,
Jóhann Birkir Helgason.