Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis - 27. fundur - 22. maí 2013
Þetta var gert:
1. Staða hönnunar og útboðsmála. 2011-12-0009.
Byggingarnefndarteikningar hafa verið afhentar byggingarfulltrúa.
Gert er ráð fyrir að útboðsgögn vegna uppsteypu og frágangs utanhúss verði tilbúin 3. júní. Gert er ráð fyrir að opnun tilboða í uppsteypu og frágang utanhúss verði í lok júní eða í byrjun júlí.
Lagt fram til kynningar.
2. Staða samninga við byggingarstjóra. 2013-01-0055.
Formaður kynnti stöðu mála, nefndin telur rétt að falla frá áformum um ráðningu byggingarstjóra og felur sviðsstjóra að leita samninga um eftirlitsmann í samræmi við umræður á fundinum og leggi málið sem fyrst fyrir nefndina.
3. Útboðsgögn vegna jarðvinnu á Torfnesi. 2011-12-0009.
Gerð útboðsgagna vegna jarðvinnu hafa verið afhent Ísafjarðarbæ og afhent verktökum. Opnun tilboða verða mánudaginn 27. maí kl. 11:00. Skiladagur er 1. júlí 2013
Á 17. fundi nefndarinnar var samþykkt að gera samning við Verkís um verkefnisstjórnun og eftirlit á byggingartíma.
Nefndin felur sviðsstjóra og formanni að ræða við Verkís um samning varðandi eftirlit á framkvæmdatíma.
4. Samningur / viljayfirlýsing við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða um rekstur hjúkrunarheimilisins Eyrar. 2013-04-0026.
Bæjarstjóri upplýsti að viðræður við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða eru í gangi.
5. Samningur við velferðarráðuneytið. 2011-12-0009.
Rætt um mögulega endurskoðun á samningi við velferðarráðuneytið.
6. Samráð við þjónustuhóp aldraðra og félag aldraðra í Ísafjarðarbæ. 2011-12-0009.
Nefndin óskar eftir að sviðsstjóri sendi bréf til þjónustuhóps félaga eldri borgara í Ísafjarðarbæ og kynni verkstöðu hjúkrunarheimilisins og að það standi til að boða til fundar með þeim á haustmánuðum.
7. Önnur mál. 2011-12-0009.
a) Lögð fram verklokaskýrsla frá Verkís vegna verksins „undirbúningur lóðar“.
Nefndin þakkar fyrir ítarlega skýrslu.
b) Varaafl í Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Rætt um hvort hjúkrunarheimilið Eyri eigi að vera tengt við varaafl Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Við fyrstu sýn er ekki talin þörf á varaafli en bæjarstjóra falið að skoða málið enn frekar.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 14:25.
Eiríkur Finnur Greipsson, formaður.
Sigurður Pétursson
Svanlaug Guðnadóttir.
Magnús Reynir Guðmundsson
Elías Oddsson
Kristín Hálfdánsdóttir
Daníel Jakobsson.
Jóhann Birkir Helgason.