Íþrótta-og tómstundanefnd - 85. fundur - 5. desember 2007
Á fundinn mættu: Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður, Stella Hjaltadóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir, Ingólfur Þorleifsson, Erik Newman og Torfi Jóhannsson fulltrúi HSV. Þórdís Jóna Jakobsdóttir boðaði forföll og enginn mætti í hennar stað.
Fundagerð ritaði Erik Newman.
Þetta var gert:
1. Bréf Blakfélagsins Skellur, Ísafirði. - Öldungamót BLÍ 2008. 2007-11-0051.
Lagt fram bréf frá Blakfélaginu Skellur á Ísafirði dagsett 14. nóvember s.l., þar sem greint er frá, að 33. öldungamót Blaksambands Íslands á næsta ári verður haldið hér á Ísafirði. Leitað er liðsinnis Ísafjarðarbæjar varðandi framkvæmd mótsins.
Íþrótta- og tómstundanefnd lýsir yfir ánægju með framtak blakfélagsins Skellnanna og hlakkar til samstarfsins.
2. Reglugerð vegna kjörs íþróttamanns Ísafjarðarbæjar. 2007-12-0024.
Farið var yfir reglugerð vegna vals á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar, sem endurgerð var sl. vetur.
Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir reglugerðina.
3. Umgengnisreglur við Sundhöll Ísafjarðar við Austurveg. 2007-12-0025.
Endurbættar umgengnisreglur fyrir Sundhöllina, íþróttasal og sundlaug, lagðar fram af Jóhönnu Gunnarsdóttur, forstöðumanni.
Lagt fram til kynningar.
4. Önnur mál
Forstöðumaður félagsmiðstöðva í Ísafjarðarbæ hefur fengið boð um að gerast fulltrúi í APYN (Alcohol Policy Youth Network), sem er verkefni í forvarnarmálum. Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 17:50.
Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður.
Rannveig Þorvaldsdóttir
Stella Hjaltadóttir
Ingólfur Þorleifsson
Torfi Jóhannsson
Erik Newman