Íþrótta-og tómstundanefnd - 72. fundur - 24. janúar 2007
Á fundinn mættu: Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður, Ingólfur Þorleifsson, Þórdís Jóna Jakobsdóttir, Stella Hjaltadóttir, Svava Rán Valgeirsdóttir, Torfi Jóhannsson, framkvæmdastjóri HSV og Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.
Fundargerð ritaði Jón Björnsson.
Þetta var gert:
1. Fjárhagsáætlun 2007.
Kynnt stefnuræða bæjarstjóra í fjárhagsáætlun 2007 og fjárhagsáætlun vegna yfirstandandi rekstrarárs. Ræddar tillögur stefnuræðunnar og næstu skref.
2. Íþróttamiðstöð Ísafjarðar.
Rætt um sameiningu íþróttahússins við Austurveg, íþróttahússins á Torfnesi og íþróttavallarsvæðisins. Fram kom að tilraun verður gerð um samrekstur þegar í næsta mánuði.
Nefndin ákveður að fara í stefnumótunarvinnu með íþróttahús sveitarfélagsins. Starfsmenn íþróttahúsanna koma einnig að þeirri vinnu.
3. Önnur mál.
Lagt fram bréf frá HSV þar sem óskað er eftir fundi með formanni nefndarinnar og íþrótta- og tómstundafulltrúa, vegna endurnýjunar á samstarfssamningi, aukinna verkefna, húsaleigusamnings og annarra samskipta milli HSV og Ísafjarðarbæjar. Formanni íþrótta- og tómstundanefndar er falið að boða slíkan fund.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl.17:24.
Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður.
Þórdís Jóna Jakobsdóttir.
Ingólfur Þorleifsson.
Stella Hjaltadóttir.
Svava Rán Valgeirsdóttir.
Torfi Jóhannsson, framkvæmdastjóri HSV.
Jón Björnsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi.