Íþrótta-og tómstundanefnd - 120. fundur - 12. janúar 2011
Mætt voru: Guðrún Margrét Karlsdóttir, formaður, Guðný Stefanía Stefánsdóttir, Þórdís Jakobsdóttir, Dagur H Rafnsson og Hermann V. Jósefsson. Jafnframt sátu fundinn Jóhann Bæring Gunnarsson, umsjónamaður eigna, Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður skóla- og fjölskylduskrifstofu og Kristján Þór Kristjánsson, framkvæmdastjóri HSV.
Fundargerð ritaði Margrét Geirsdóttir.
Þetta var gert:
1. Tillaga að vatnsleikjadögum.
Lögð fram tillaga frá Kristjáni Andra Guðjónssyni dagsett 4. janúar 2011, er vísað var frá bæjarstjórn til íþrótta- og tómstundanefndar, þar sem hann fer þess á leit að stór vatnaleikföng verði leyfð einu sinni í mánuði í sundlaugum Ísafjarðarbæjar.
Íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar leggur til að leikjadagar verði leyfðir einu sinni að vori og einu sinni að hausti í Sundhöll Ísafjarðar. Gæta þarf sérstaklega að öryggisþáttum og óskar nefndin þess að umsjónarmaður eigna hafi samráð við starfsmenn um útfærsluna.
2. Þjónustusamningur Ísafjarðarbæjar við Skíðafélag Ísafjarðar. 2010-12-0074.
Lögð fram til kynningar drög að þjónustusamningi Ísafjarðarbæjar og Skíðafélag Ísafjarðar vegna vinnu á skíðasvæðinu. Stærsta breytingin frá fyrri samningi er að mánaðargreiðslur lækka og jafnframt að mánaðargjaldið lækkar um 40% ef ekki kemur til opnunar. Hér er einnig um að ræða þá nýbreytni að í stað þess að gerður sé sérstakur samningur um hvort skíðasvæðið um sig, er hér verið að semja um þjónustu á báðum svæðum í einum samningi. Íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar felur starfsmanni að leggja fullmótaðan samning fyrir bæjarstjórn.
Jafnframt leggur nefndin til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að hún samþykki samninginn.
3. Samningar við Boltafélag Ísafjarðar. 2011-01-0019.
Lögð fram drög að tveimur samningum við Boltafélag Ísafjarðar, þar sem afnotaréttur Boltafélagsins af æfinga- og keppnissvæði er skilgreindur.
Íþrótta- og tómstundanefnd Ísafjarðarbæjar felur starfsmanni að leggja fullmótaða samninga fyrir bæjarstjórn.
Jafnframt leggur nefndin til við bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að hún samþykki samningana
4. Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2010. 2010-12-0020.
Hermann V. Jósefsson vék af fundi undir þessum lið.
Val á íþróttamanni Ísafjarðarbæjar 2010. Sjö tilnefningar bárust nefndinni um íþróttamann Ísafjarðarbæjar að þessu sinni. Nefndin tók einróma ákvörðun um valið og verður sú ákvörðun kynnt sunnudaginn 23. janúar n.k. kl. 16:00 í hófi sem haldið verður í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði.
Kristján Þór Kristjánsson vék af fundi kl. 17:13.
5. Önnur mál.
Umsjónarmaður eigna tilkynnti að allir starfsmenn og kennarar í íþróttamannvirkjum í Ísafjarðarbæ hafi undirgengist hæfnispróf starfsmanna sundstaða.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 18:25.
Þórdís Jakobsdóttir.
Guðný Stefanía Stefánsdóttir.
Hermann V. Jósefsson.
Dagur H. Rafnsson.
Margrét Geirsdóttir.
Kristján Þór Kristjánsson.