Íþrótta-og tómstundanefnd - 113. fundur - 24. mars 2010
Mætt voru: Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður, Stella Hjaltadóttir og Ingólfur Þorleifsson. Svava Rán Valgeirsdóttir boðaði forföll og mætti Lísbet Harðardóttir í hennar stað. Þórdís Jakobsdóttir boðaði forföll en enginn mætti í hennar stað. Jafnframt sátu fundinn Margrét Halldórsdóttir, íþrótta- og tómstundafulltrúi og Kristján Þór Kristjánsson, framkvæmdastjóri HSV. Fundargerð ritaði Margrét Halldórsdóttir.
Þetta var gert:
1. Laun og vinnustundir unglinga sumarið 2010. 2010-02-0047.
Lagt fram bréf frá íþrótta- og tómstundafulltrúa dagsett 12. febrúar 2010, þar sem fram kemur tillaga að launum og vinnumagni unglinga í Vinnuskóla Ísafjarðarbæjar 2010.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt svo fjárhagsáætlun standist.
2. Niðurstöður Forvarnardagsins 2009. 2010-03-0022.
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dagsett 3. mars sl., þar sem greint er frá helstu niðurstöðum Forvarnadagsins, sem haldinn var í 9. bekk allra grunnskóla landsins 30. september 2009.
Lagt fram til kynningar.
3. Áskorun til sveitafélaga. 2008-10-0036.
Lagður fram tölvupóstur frá nemendum og kennara við tómstunda- og félagsmálafræðibraut menntasviðs HÍ dagsett 11. mars s.l., þar sem skorað er á sveitarfélög að standa vörð um tómstunda- og félagsstarf í sveitarfélögum.
Lagt fram til kynningar.
4. Önnur mál:
Nefndin óskar nemendum Grunnskólans á Ísafirði til hamingju með sigurinn í sínum riðli í Skólahreysti og óskar þeim velfarnaðar í úrslitakeppninni, sem er 29. apríl n.k.
Fleira ekki gert, fundarbókun upp lesin og samþykkt. Fundi slitið klukkan kl. 15:30.
Guðný Stefanía Stefánsdóttir, formaður.
Stella Hjaltadóttir.
Ingólfur Þorleifsson.
Lísbet Harðardóttir.
Margrét Halldórsdóttir.
Kristján Þór Kristjánsson.