Íþrótta - 171. fundur - 29. júní 2016
Jón Ottó Gunnarsson og Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir boðuðu forföll og mætti enginn í þeirra stað. Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri HSV sat einnig fundinn.
Dagskrá:
1. |
Dekkjakurl á gervigrasvöllum Ísafjarðarbæjar - 2016060080 |
|
Lagt fram bréf frá hverfaráðum í Skutulsfjarðarbotni, Hnífsdal, Suðureyri og Þingeyri þar sem óskað er eftir afstöðu Ísafjarðarbæjar til dekkjakurls á gervigrasvöllum sveitarfélagsins. |
||
Ísafjarðarbær hefur verið með málið til skoðunar og mun fylgjast með framvindunni á landsvísu, m.a. þeirri vinnu sem Alþingi hefur sett af stað. |
||
|
||
2. |
Forstöðumaður skíðasvæðis ráðning - 2016060016 |
|
Lagt fram minnisblað mannauðsstjóra er varðar ráðningu í starf forstöðumanns skíðasvæðis. |
||
Nefndin gerir ekki athugasemd við ráðningarferlið og tillögu bæjarstjóra um hver verður ráðinn. |
||
Gestir |
||
Herdís Rós Kjartansdóttir - 08:13 |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:35
Kristján Andri Guðjónsson |
|
Sif Huld Albertsdóttir |
Gísli Halldór Halldórsson |
|
Guðrún Margrét Karlsdóttir |
Margrét Halldórsdóttir |
|
|