Íþrótta - 160. fundur - 30. september 2015
Dagskrá:
1. |
Verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar - 2014030027 |
|
Lagður fram verkefnalisti íþrótta- og tómstundanefndar. |
||
Nefndin óskar eftir greiningu á notkun lyftingaraðstöðu í vallarhúsinu. |
||
|
||
2. |
Fjárhagsáætlun 2016 - 2015030048 |
|
Lagt fram minnisblað bæjarritara, Þórdísar Sifjar Sigurðardóttur dagsett 21. september 2015. Þar sem fram kemur að bæjarráð leggur til að gjaldskrá hækki um 4,3%. Einnig lögð fram gjaldskrá sveitarfélagsins árið 2015. |
||
Nefndin leggur til að farið verði varlega í hækkanir á árskortum í íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar, bæjarbúar verði frekar hvattir til hreyfingar. Jafnframt vill nefndin skoða að gjaldfrjálst yrði fyrir börn 0-18 ára í íþróttamannvirki Ísafjarðarbæjar. |
||
|
||
3. |
Árskýrsla HSV 2014 - 2015090073 |
|
Lögð fram árskýrsla Héraðssambands Vestfirðinga. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
4. |
Vinnuskólinn 2015 - 2015070034 |
|
Lögð fram árskýrsla vinnuskóla Ísafjarðarbæjar 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
Aðstaða til inniklifuræfinga á Ísafirði - 2015090069 |
|
Lagður fram tölvupóstur Örvars Dóra Rögnvaldssonar, dagsettur 21. september sl., þar sem óskað er eftir viðræðum við bæjaryfirvöld vegna aðstöðu til inniklifuræfinga á Ísafirði. |
||
Nefndin fagnar frumkvæði bréfritara og tekur jákvætt í erindið hljótist ekki kostnaður af þar sem verið er að vinna eftir samþykktri uppbyggingaráætlun. Nefndin felur starfsmanni að kanna hvort Ísafjarðarbær eigi húsnæði sem gæti hentað hugmyndinni. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30
Benedikt Bjarnason |
|
Sif Huld Albertsdóttir |
Þórir Karlsson |
|
Guðrún Margrét Karlsdóttir |
Guðjón Már Þorsteinsson |
|
Margrét Halldórsdóttir |