Hafnarstjórn - 187. fundur - 21. október 2016
Dagskrá:
1. |
Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047 |
|
Lögð fram drög að rekstrarreikningi og rekstraráætlun hafnarsjóðs fyrir fjárhagsáætlun 2017. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
2. |
Fjárhagsáætlun 2017 - 2016020047 |
|
Lögð fram drög að gjaldskrá hafnarsjóðs fyrir fjárhagsáætlun 2017. |
||
Hafnarstjórn leggur til við bæjarstjórn að farþegagjöld verði hækkuð í þremur áföngum upp í 130 krónur og að árið 2017 verði farþegagjald fyrir hvern fullorðinn farþega 75 krónur. Hafnarstjórn leggur jafnframt til að stofnaður verði sérstakur uppbyggingar- og framkvæmdasjóður sem úthluti til uppbyggingarverkefna í hafnsækinni ferðaþjónustu, þar sem einstaklingar, fyrirtæki og félagasamtök geti sótt um úthlutun. Þessi uppbyggingar- og framkvæmdasjóður verður fjármagnaður með hluta farþegagjalda. Árið 2017 renna 25 krónur af farþegagjaldi á hvern farþega í þennan sjóð. Hlutfallið verði endurskoðað árlega. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:11
Kristján Andri Guðjónsson |
|
Jóna Benediktsdóttir |
Daníel Jakobsson |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Valur Sæþór Valgeirsson |
|
Guðmundur M Kristjánsson |
Hjördís Þráinsdóttir |
|
|