Hafnarstjórn - 183. fundur - 1. mars 2016
Dagskrá:
1. |
Mávagarður - Þybbumannvirki - 2016030002 |
|
Fyrir fundinum liggja 2 tillögur að þybbumannvirki, annars vegar frá Verkís og hins vegar frá hafnamálasviði Vegagerðar Íslands ásamt minnisblaði frá báðum aðilum. |
||
Nefndin felur sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs að leggja mat á tillögurnar og leggja álit fyrir nefndina. |
||
|
||
2. |
Hafnasamband Íslands - Ýmis erindi og fundargerðir 2013-2015 - 2013060031 |
|
Fyrir fundinum liggja fundargerðir 380. og 381. stjórnarfunda Hafnasambands Íslands. |
||
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar. |
||
|
||
3. |
Viðbragðsáætlun vegna bráðarmengunar innan hafnarsvæða - 2016010016 |
|
Fyrir fundinum liggja drög að viðbragðsáætlun vegna bráðamengunar unnin af Ralf Trylla, umhverfisfulltrúa Ísafjarðarbæjar. |
||
Nefndin þakkar umhverfisfulltrúa fyrir vel unnin drög. |
||
|
||
Gestir |
||
Ralf Trylla - 12:20 |
||
|
||
4. |
Umhverfisstefna Ísafjarðarbæjar - 2011090086 |
|
Undir þessum lið mætir Ralf Trylla umhverfisfulltrúi og kynnir fyrir hafnarstjórn hugmyndir sínar varðandi umhverfisstefnu. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
|
||
5. |
Ljósmyndasýning á hafnarsvæði - 2016030003 |
|
Fyrir fundinum liggur tölvupóstur frá Jónu Símoníu Bjarnadóttur, forstöðumanns Safnahúss dags. 19.02.2016 þar sem gerð er tillaga að ljósmyndasýningu sem sýnir Ísafjörð í vetrarbúningi. |
||
Hafnarstjórn samþykkir að taka þátt í verkefninu. |
||
|
||
6. |
Mávagarður C - umsókn um lóð - 2014120069 |
|
Vestfirskir verktakar sækja um endurnýjun á lóðarumsókn fyrir lóðina Mávagarður C skv. gildandi deiliskipulagi. Umsókn dags. 15. janúar 2015. |
||
Nefndin gerir ekki athugasemd við umsóknina. |
||
|
||
Gestir |
||
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir - 12:37 |
||
|
||
7. |
Umsóknir um lóðir á Suðurtanga - 2016020037 |
|
Fyrir fundinum liggur bréf frá Pétri Sigurðssyni, viðskiptastjóra Skeljungs dags. 22. febrúar 2016 vegna umsóknar á lóð fyrir eldsneytisafgreiðslustöð sem á að koma i staðinn fyrir tank sem er núna við vegg hjá afgreiðslustöð Eimskipa / Flytjanda. |
||
Nefndin felur hafnarstjóra að ræða við bréfritara í þeim tilgangi að finna aðra útfærslu. |
||
|
||
8. |
Mávagarður B - Umsókn um lóð - 2016010041 |
|
Vestfirskir verktakar sækja um lóðina Mávagarður B skv. gildandi deiliskipulagi. Umsókn dags. 15. janúar 2015. Umsókninni vísað til umsagnar í hafnarstjórn. |
||
Nefndin gerir ekki athugasemd við tillöguna. |
||
|
||
9. |
Deiliskipulag á Suðurtanga, Ísafirði - 2011020059 |
|
Fyrir fundinum liggja tillögur að deiliskipulagi á Suðurtanga. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:05
Kristján Andri Guðjónsson |
|
Daníel Jakobsson |
Hafdís Gunnarsdóttir |
|
Marzellíus Sveinbjörnsson |
Valur Sæþór Valgeirsson |
|
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson |
Guðmundur M Kristjánsson |
|
|