Hafnarstjórn - 162. fundur - 12. nóvember 2012
1. Lóðarumsókn á Mávagarði, Ísafirði. 2012-07-0034.
Erindi frá umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar er varðar umsókn Skeljungs um lóð E undir olíubirgðastöð á Mavagarði, Ísafirði.
Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið, en bendir á að þessi lóð er ekki skilgreind sem lóð fyrir oliubirgdastöð í gildandi deiliskipulagi.
2. Fiskeldi í Skutulsfirði. 2012-10-0021.
Erindi frá umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar er varðar umsögn vegna umsóknar Fjarðareldis ehf. um að stunda fiskeldi í Skutulsfirði.
Hafnarstjórn bendir á að umrætt svæði er mjög nálægt siglingaleið smábáta og óskar eftir því að leitað verði álits Eldingar félags smábátasjómanna á Ísafirði á þessu máli. Að öðru leiti gerir hafnarstjórn ekki athugasemdir við málið.
Hafnarstjórn tekur undir með umhverfisnefnd Ísafjarðarbæjar að ákvarðanir um svona mál verði færðar heim í hérað.
3. Gjaldskrá hafna Ísafjarðarbæjar 2013. 2011-11-0019.
Umræður og ákvarðanir um hækkun gjaldskrár fyrir hafnir Ísafjarðarbæjar árið 2013.
Hafnarstjórn samþykkir að gjaldskrá hækki almennt um 4 % en aflagjald verði óbreytt.
4. Kaupsamningur vegna dráttarbrautar í Suðurtanga, Ísafirði. 2010-06-0074.
Lagður fram kaupsamningur og afsal vegna sölu Ísafjarðarbæjar á dráttarbrautinni í Suðurtanga, Ísafirði, til Skipanausts ehf., Ísafirði.
Lagt fram til kynningar.
5. Umsókn um lóð fyrir bílastæði á Suðureyri. 2012-10-0040.
Erindi frá umhverfis- og eignasviði Ísafjarðarbæjar er varðar erindi Elíasar Guðmundssyni, Suðureyri, varðandi rútubílastæði á uppfyllingu ofan til við hafnarhúsið milli þjóðvegar og uppsáturs smábáta.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við erindið, en leggur áherslu á að tryggt verði að þetta skerði ekki aðgengi að skábrautinni við Suðureyrarhöfn eða starfsemi henni tengdri.
6. Gamli olíumúlinn við Ásgeirsbakka, Ísafirði. 2012-10-0004.
Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að gera frumkönnun og kostnaðaráætlun varðandi verndun gamla olíumúla við Ásgeirsbakka á Ísafirði, í samræmi við umræður á fundinum og finna verkefninu stað í fjárhagsáætlun.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:25.
Gísli Jón Kristjánsson, formaður.
Guðfinna Hreiðarsdóttir.
Marzellíus Sveinbjörnsson.
Kristján Andri Guðjónsson.
Sigurður Hafberg.
Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri.