Hafnarstjórn - 121. fundur - 1. desember 2006
Mætt eru Guðni Geir Jóhannesson, formaður, Níels Björnsson, Gísli Jón Kristjánsson, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Kristján Andri Guðjónsson og Guðmundur M Kristjánsson, hafnarstjóri, sem ritar fundargerð.
Þetta var gert.
1. Gjaldskrármál.
Ákvörðun hækkunnar gjaldskrár. Fyrir fundinum liggja tilmæli frá bæjarráði Ísafjarðarbæjar dagsett 31. október 2006, um 10% hækku á gjaldskrám stofnanna Ísafjarðarbæjar.
Hafnarstjórn leggur til eftirfarandi hækkanir á gjaldskrám.
4.gr: Lestagjöld +7% -
5gr: Bryggjugjöld +7% -
6.gr: Vörugjöld. 1fl:+7% - 2fl:+7% - 3 fl:+7% - Innkomi 4fl: kr. 1020.- pr. tonn fyrir vörur sem ekki er getið í öðrum flokkum. 5 . fl: Aflagjald 1.4%.
7gr: Farþegagjöld +10% -
8 gr: Siglingarvernd (ISPS). +10% -
9.gr: Þjónustugjaldskrá. +10% nema rafmagn til skipa svk gjaldskrá OV hverju sinni. - 10.gr: Hafnsaga +7% og hafnsögugjöld hækki um +10% -
11.gr: Leigugjöld. +10% og bætist við geymsluport í Suðurtanga kr. 55.- pr. ferm. á mánuði.
12.gr: Hafnsögubátur +10% -
13.gr: Vatnsgjald. +10% -
14.gr: Móttaka skipa +10% -
15.gr: Sorphirðugjald. +10% -
16.gr: Vogargjöld. +10% -
17.gr: Viðlegugjöld. +7% -
18.gr: Verði óbreytt.
Tillagan gerir ráð fyrir að meðaltalshækkun verði 8.06%.
2. Olíubryggja á Mávagarði.
Fyrir fundinum liggur bréf frá Sigurði Á. Grétarssyni, forstöðumanni hafnarmálsviðs Siglingastofnunar dagsett 27. nóvember s.l., ásamt uppdrætti (frumhugmyndir) af fyrirhugaðri aðstöðu fyrir olíubirgðarstöð á Mávagarði.
Hafnarstjórn fagnar framkomnum tillögum, en bendir á að gera þarf ráð fyrir að grjótgarðurinn norðan Mávagarðs þarf að vera í beinni línu til að verjast ágangi sjávar.
Hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar falið að ræða frekar við fulltrúa Siglingastofnunar meðan tillögur eru í mótun.
3. Önnur mál.
Hafnarstjórn Ísafjarðarbæjar fagnar þeirri ákvörðun Atlantsskipa hf., að hefja strandsiglingar.
Megi þessi ákvörðun þeirra verða þeim og landsbyggðinni happadrjúg í framtíðinni.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 13:05.
Guðni Geir Jóhannesson formaður.
Níels Björnsson.
Gísli Jón Kristjánsson.
Lilja Rafney Magnúsdótir.
Kristján Andri Guðjónsson.
Guðmundur M. Kristjánsson, hafnarstjóri.