Félagsmálanefnd - 393. fundur - 24. nóvember 2014
393. fundur félagsmálanefndar
haldinn í fundarsal bæjarstjórnar í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði,
og hófst hann kl. 12:00
Fundinn sátu:
Gunnhildur Björk Elíasdóttir, formaður
Guðný Harpa Henrysdóttir, varaformaður
Steinþór Bragason, aðalmaður
Arna Ýr Kristinsdóttir, varamaður
Magnús Þór Bjarnason, varamaður
Sædís María Jónatansdóttir, deildarstjóri félagsþjónustu
Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Anna Valgerður Einarsdóttir, deildarstjóri barnaverndar
Fundargerð ritaði: Sædís María Jónatansdóttir.
Hildur Elísabet Pétursdóttir boðaði forföll og í hennar stað mætti Arna Ýr Kristinsdóttir. Aron Guðmundsson boðaði forföll og í hans stað mætti Magnús Þ. Bjarnason. Sólveig Guðnadóttir mætti ekki og enginn í hennar stað.
Dagskrá:
1. |
2011090094 - Trúnaðarmál. |
|
Fjögur trúnaðarmál lögð fram til afgreiðslu í félagsmálanefnd. |
||
Trúnaðarmálin afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar. |
||
|
||
2. |
2014110042 - Daggæsla í heimahúsi |
|
Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur dags. 24. nóvember 2014 þar sem Ástrún Þórðardóttir kt. 140593-3039 sækir um leyfi til daggæslu barna hjá Ísafjarðarbæ. Starfsemin muni fara fram á heimili hennar að Pólgötu 5 á Ísafirði. Tilskilin vottorð liggja fyrir. |
||
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir umsækjanda leyfi til daggæslu á grundvelli greinargerðar Sigurlínu. Leyfið verði endurskoðað að einu ári liðnu. Dagforeldrinu er heimilað að gæta fjögurra barna, frá sex mánaða aldri. Ekki er heimilt að á hverjum tíma séu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri. Að ári liðnu skal endurnýja leyfið skv. reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum nr. 907/2005. |
||
|
||
3. |
2014100054 - Frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl. |
|
Bæjarráð vísar erindi nefndarsviðs Alþingis, frá 23. október sl., til félagsmálanefndar, þar sem leitað er umsagnar um frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl. |
||
Félagsmálanefnd leggst alfarið gegn því að frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak nái fram að ganga. Mikil vinna fer fram í forvarnarstarfi með ungmennum og telur nefndin að breytingin á lögunum stefni þeirri vinnu í uppnám. |
||
|
||
4. |
2014110026 - Endurskoðun laga um lögheimili, 33. mál - tillaga til þingsályktunar |
|
Bæjarráð vísar beiðni um umsögn til félagsmálanefndar. |
||
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar er þeirrar skoðunar að meginreglan ætti að vera sú að lögheimili hjóna sé á sama stað. Hins vegar eigi að vera hægt að sækja um undanþágu frá þeirri meginreglu með gildum rökum. |
||
|
||
5. |
2014110029 - Störf fyrir atvinnuleitendur með skerta starfsgetu - samstarfsverkefni VMST ÖBÍ og Þroskahjálpar |
|
Bæjarráð vísar erindinu til félagsmálanefndar. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
6. |
2012120016 - Fjárhagsaðstoð |
|
Lagt fram vinnuskjal vegna endurskoðunar á reglum Ísafjarðarbæjar um fjárhagsaðstoð. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
2014110060 - Þingsályktun um aðgerðaáætlun um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra, 52. mál. |
|
Lagt fram erindi frá nefndasviði Alþingis þar sem félagsmálanefnd er gefinn kostur á að senda velferðarnefnd Alþingis umsögn vegna tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra, 52. mál. |
||
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar fagnar því að úrbætur verði gerðar í geðheilbrigðismálum barna og ungmenna og að tillögurnar feli í sér sérstök barnateymi sbr. 5. þátt aðgerðaráætlunarinnar. Vísir að slíku teymi hefur verið starfandi á Vestfjörðum um árabil og hefur gjörbylt þjónustu við þennan hóp til hins betra. Verkefnið var tilkomið vegna stuðnings frá Kiwanis og klárast sá styrkur vorið 2015. Aðilar að teyminu eru Barna- og unglingageðdeild, barnaverndarnefnd á norðanverðum Vestfjörðum, Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og skólaþjónusta. Það er samróma álit allra sem að teyminu koma að afar mikilvægt sé að sambærilegt teymi starfi áfram. |
||
|
||
8. |
2011090092 - Fundargerðir verkefnahóps BSVest. |
|
Lagðar fram fundargerðir funda nr. 40, 41 og 42. |
||
Fundargerðir lagðar fram til kynningar og umræður um þær. |
||
|
||
9. |
2010070042 - Fundargerðir 2010-2013 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði |
|
Lögð fram fundargerð nr. 40. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
10. |
2007030053 - Fundargerðir Þjónustuhópur aldraðra 2007- |
|
Lagðar fram fundargerðir nr. 75 og 76. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:25
Gunnhildur Björk Elíasdóttir |
|
Guðný Harpa Henrysdóttir |
Steinþór Bragason |
|
Arna Ýr Kristinsdóttir |
Magnús Þór Bjarnason |
|
Sædís María Jónatansdóttir |
Margrét Geirsdóttir |
|
Anna Valgerður Einarsdóttir |
|
|
|