Félagsmálanefnd - 390. fundur - 8. september 2014
Dagskrá:
1. |
2011090094 - Trúnaðarmál. |
|
Tvö trúnaðarmál lögð fram í félagsmálanefnd. |
||
Trúnaðarmálin rædd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar. |
||
|
||
2. |
2012110034 - Endurskoðun erindisbréfa |
|
Lögð fram drög að erindisbréfi fyrir félagsmálanefnd en í drögunum er búið að gera breytingar í samræmi við umræður á síðasta fundi nefndarinnar. |
||
Smávægilegar breytingar voru gerðar á erindisbréfinu á fundinum. Félagsmálanefnd vísar erindisbréfinu til bæjarstjórnar og leggur til að það verði samþykkt með áorðnum breytingum. |
||
|
||
3. |
2014080060 - Fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs fyrir árið 2015 |
|
Lögð fram drög að gjaldskrá fjölskyldusviðs fyrir árið 2015. |
||
Rætt um gjaldskrána og starfsmönnum falið að gera breytingar á gjaldskránni í samræmi við umræður á fundinum. Almennt hækkar gjaldskráin um 3,4%. |
||
|
||
4. |
2014090006 - Húsaleigubætur 2015 |
|
Lagt fram bréf dags. 27. ágúst s.l. frá jöfnunarsjóði sveitarfélaga þar sem óskað eftir umsóknum frá sveitarfélögum um framlög Jöfnunarsjóðs vegna almennra húsaleigubóta fjárhagsárið 2015. Jafnframt lagt fram bréf dags. 27. ágúst s.l. þar sem óskað er eftir upplýsingum um heildargreiðslur sveitarfélagsins á sérstökum húsaleigubótum fyrir fjárhagsárið 2015. |
||
Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
5. |
2014080061 - Þjónustuhópur aldraðra, nefndarmenn |
|
Rætt um fulltrúa í þjónustuhópi aldraðra. |
||
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar leggur til við bæjarstjórn að Hildur Elísabet Pétursdóttir verði kjörin formaður þjónustuhóps aldraðra fyrir hönd félagsmálanefndar og Gunnhildur Björk Elíasdóttir verði kjörin varaformaður. |
||
|
||
6. |
2014090028 - Skýrsla um félagsþjónustu fyrir árið 2013. |
|
Lögð fram skýrsla um félagsþjónustu fyrir árið 2013. |
||
Umræður um skýrsluna. Lagt fram til kynningar. |
||
|
||
7. |
2010070042 - Fundargerðir 2010-2013 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði |
|
Lagðar fram fundargerðir nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis frá fundum nr. 34-37. |
||
Umræður um fundargerðirnar sem eru lagðar fram til kynningar. |
||
|
||
8. |
2014060001 - Niðurstöður 2014 |
|
Lögð fram skýrsla frá Rannsóknum og greiningu um Hagi og líðan ungs fólks í Ísafjarðarbæ. Niðurstöður rannsóknar meðal nemenda í 8., 9. og 10. bekk árið 2014 og einnig skýrsla um vímuefnanotkun framhaldsskólanema á Íslandi 2013 sem unnin var fyrir Menntaskólann á Ísafirði. |
||
Umræður um skýrslurnar sem eru lagðar fram til kynningar. |
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:55
Helga Björk Jóhannsdóttir |
|
Gunnhildur Björk Elíasdóttir |
Aron Guðmundsson |
|
Steinþór Bragason |
Sædís María Jónatansdóttir |
|
Hafdís Gunnarsdóttir |
Margrét Geirsdóttir |
|
Arna Ýr Kristinsdóttir |
|
|
|