Félagsmálanefnd - 367. fundur - 17. apríl 2012
Dagskrá:
1. |
2010050008 - Jafnréttisáætlun. |
|
Lögð fram drög að jafnréttisstefnu Ísafjarðarbæjar ásamt drögum að framkvæmdaáætlun fyrir stefnuna á árunum 2012-2014. |
||
Félagsmálanefnd felur starfsmönnum að tryggja að allar nefndir fái drögin til umsagnar svo fljótt sem auðið er og að umsögnum hafi verið skilað í síðasta lagi þann 25. maí n.k. |
||
|
||
2. |
2012040011 - Leyfi til daggæslu í heimahúsi. |
|
Lögð fram greinargerð Sigurlínu Jónasdóttur dags. 29. mars 2012 þar sem Jóna Dagbjört Guðmundsdóttir, Seljalandsvegi 30, Ísafirði, óskar eftir leyfi til daggæslu barna í heimahúsi. Fyrir liggja samþykkt vottorð. |
||
Félagsmálanefnd Ísafjarðarbæjar veitir umsækjanda leyfi til daggæslu í heimahúsi á grundvelli greinargerðar Sigurlínu. Leyfið verði endurskoðað að einu ári liðnu.
Dagforeldrinu er heimilað að gæta fjögurra barna, frá 6 mánaða aldri. Ekki er heimilt að á hverjum tíma séu fleiri en tvö börn undir eins árs aldri. |
||
|
||
3. |
2012010026 - Þjónustuíbúðir á Tjörn. |
|
Rætt um sumarlokanir Heilbrigðisstofunar Vestfjarða á hjúkrunarheimilinu Tjörn á Þingeyri sumarið 2012. Lokunin mun vara í þrjá mánuði. Sædís María Jónatansdóttir kynnti nefndinni möguleika á þjónustu Ísafjarðarbæjar við íbúa í þjónustuíbúðum sveitarfélagsins að Tjörn á Þingeyri. |
||
Félagsmálanefnd felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu og leggja frekari upplýsingar fyrir næsta fund nefndarinnar. Félagsmálanefnd vill vekja athygli á að í fjárhagsáætlun var ekki gert ráð fyrir sumarlokun á Tjörn sumarið 2012 og þeim kostnaði sem af henni hlýst. |
||
|
||
4. |
2012010081 - Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra 2012. |
|
Lagt fram bréf frá Velferðarráðuneytinu dags. 12. apríl 2012 um úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra 2012. Ísafjarðarbær hlaut styrk að fjárhæð kr. 100.000,- til að bæta vinnuaðstöðu í mötuneytinu á Hlíf. |
||
Félagsmálanefnd þakkar styrkinn. |
||
|
||
5. |
2012040033 - Þjónusta við fötluð börn sumarið 2012. |
|
Rætt um sumarþjónustu við fötluð börn sumarið 2012. Í ljósi meiri þarfar fyrir sumarþjónustu en gert var ráð fyrir í vinnu við fjárhagsáætlun ársins 2012 er óskað eftir auknu fjármagni til félagslegrar liðveislu, liðar 02-520. |
||
Félagsmálanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkt verði tillaga um aukið fjármagn sem nemur kr. 1.185.803,- vegna sumarþjónustu við fötluð börn sumarið 2012. |
||
|
||
6. |
2010070042 - Fundargerðir 2010/2011 - Nefnd um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði |
|
Lögð fram fundargerð 15. fundar nefndar um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði. |
||
Umræður um fundargerðina. |
||
|
||
7. |
2012040034 - Skýrsla um félagsþjónustu fyrir árið 2011. |
|
Lögð fram skýrsla um félagsþjónustu í Ísafjarðarbæ fyrir árið 2011 |
||
Starfsfólki fjölskyldusviðs er falið að bera saman skýrslur síðustu þriggja ára og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar. |
||
|
||
8. |
2011090094 - Trúnaðarmál. |
|
Fjögur trúnaðarmál lögð fram í félagsmálanefnd. |
||
Trúnaðarmál afgreidd og færð til bókar í trúnaðarmálabók félagsmálanefndar. |
||
|
Önnur mál:
A) 2010-09-0013. Gunnar Þórðarson lagði fram fyrirspurn um kostnað sem féll á Ísafjarðarbæ vegna yfirtöku á málefnum fatlaðra á árinu 2011. Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, gerði grein fyrir kostnaðinum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10
Guðfinna M Hreiðarsdóttir.
Jón Reynir Sigurðsson.
Gunnar Þórðarson.
Rannveig Þorvaldsdóttir.
Jóna Benediktsdóttir.
Sædís María Jónatansdóttir.
Harpa Stefánsdóttir.
Anna Valgerður Einarsdóttir.
Margrét Geirsdóttir.
Kristrún Helga Ólafsdóttir.