Félagsmálanefnd - 313. fundur - 23. maí 2008
Mætt voru: Gísli H. Halldórsson, formaður, Rannveig Þorvaldsdóttir, Hrefna R. Magnúsdóttir, Ásthildur Gestsdóttir og Elín Halldóra Friðriksdóttir. Jafnframt sátu fundinn Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu, Anna Valgerður Einarsdóttir, Guðný Steingrímsdóttir og Sædís María Jónatansdóttir, starfsmenn Skóla- og fjölskylduskrifstofu. Sædís María Jónatansdóttir ritaði fundargerð.
Þetta var gert:
1. Liðveisla sumarið 2008. 2003-03-0106.
Rætt um liðveislu fyrir fötluð börn sumarið 2008 og um aukna samvinnu Ísafjarðarbæjar og Svæðisskrifstofu málaefna fatlaðra á Vestfjörðum.
Félagsmálanefnd samþykkir að sveitarfélagið bjóði upp á þjónustu í formi liðveislu/dagþjónustu, í allt að 8 klst. á dag í júní og júlí 2008. Um er að ræða fyrsta skrefið í átt að dagþjónustu við fötluð börn á sumrin.
2. Trúnaðarmál.
Trúnaðarmál rædd og færð til bókar í trúnaðarmálamöppu félagsmálanefndar.
Fleira ekki gert, fundargerð upp lesin og samþykkt, fundi slitið kl. 13:05.
Gísli H. Halldórsson, formaður.
Elín Halldóra Friðriksdóttir.
Rannveig Þorvaldsdóttir.
Hrefna R. Magnúsdóttir.
Ásthildur Gestsdóttir.
Sædís María Jónatansdóttir, ráðgjafi.
Guðný Steingrímsdóttir, félagsráðgjafi.
Margrét Geirsdóttir, forstöðumaður Skóla- og fjölskylduskrifstofu.
Anna Valgerður Einarsdóttir, ráðgjafi.