Atvinnu- og menningarmálanefnd - 131. fundur - 4. febrúar 2016
Dagskrá:
1. |
Samningur um atvinnuþróunarverkefni - 2010080057 |
|
Lögð er fram tillaga Shirans Þórissonar, framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, dags. 29. janúar sl., um nýtingu fjármuna samkvæmt samningi milli Ísafjarðarbæjar og Atvest um atvinnuþróunarverkefni árið 2016. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til við bæjarráð að tillaga Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða verði samþykkt. Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar jafnframt eftir því að Atvinnuþróunarfélagið sendi nefndinni skýrslu eftir að fjármagnið hefur verið nýtt með sundurliðaðri nýtingu þess milli markaðssetningar og viðburða. |
||
|
||
2. |
Brothættar byggðir - 2014090062 |
|
Umræður um umsókn Ísafjarðarbæjar um þátttöku í verkefninu Brothættar byggðir og atvinnuöryggi. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd óskar eftir að fá upplýsingar Byggðastofnunar um stöðu umsóknar Ísafjarðarbæjar um þátttöku í verkefninu Brothættar byggðir og mat á því hvenær hægt verði að taka byggðalögin þrjú sem sótt var um af Ísafjarðarbæ inn í verkefnið. |
||
|
||
3. |
Nýting á húsnæði Ísafjarðarbæjar, Engi - 2015030069 |
|
Tillaga atvinnu- og menningarmálanefndar um að setja af stað hugmyndasamkeppni um nýtingu á húsinu Engi, var samþykkt á 372. fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 21. janúar sl. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur starfsmanni nefndarinnar að auglýsa hugmyndasamkeppnina í samræmi við umræður á fundinum. Umsóknarfresturinn var ákveðinn 10. mars 2016. |
||
|
||
4. |
17. júní 2016 - 2015100011 |
|
Lagt er fram bréf Elfars Loga Hannessonar, f.h. Kómedíuleikhússins, dags. 25. janúar sl., þar sem Kómedíuleikhúsið býðst til að taka við skemmtidagskrá 17. júní hátíðarhaldanna á Ísafirði. |
||
Atvinnu- og menningarmálanefnd felur upplýsingafulltrúa að ræða við bréfritara og fá frekari upplýsingar varðandi tillögu hans um aðkomu Kómedíuleikhússins að skemmtidagskrá 17. júní 2016 á Ísafirði. |
||
|
||
Gestir |
||
Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, upplýsingafulltrúi - 15:02 |
||
|
||
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:26
Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir |
|
Björn Davíðsson |
Bryndís Ásta Birgisdóttir |
|
Þórdís Sif Sigurðardóttir |